*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    fimmtudagur, maí 06, 2004

    Nessun dorma....mmmm...me like


    Allavega, algjörlega þessu óviðkomandi þá gerði ég mér grein fyrir því að það gæti orðið vandasamt verk að blogga á þremur mismunandi stöðum í sumar. Spurning hvort ég sendi Blesöndina í sumarhibernation, eða sendi hana í flug norður.

    Alma, btw. þá þurfum við að fara koma upp Ítalíubloggsíðu...koma henni upp áður en við förum út og geta haft countdown og allskonar stuð og geggjun.

    Annars er ég búin að hlusta ansi oft á Nessun Dorma úr Turandot síðasta klukkutímann, núna síðast fékk ég tár í augun. Veit ekki hvað það er með þessa óperu og fjölskylduna. Hún hefur e-t óbeint sentimental gildi fyrir okkur á e-n skringilegan hátt.

    *Vigga* skrifaði klukkan: *19:17*


    Lilli bróðir kominn með vinnu
    Gummi Palli litli bróðir (a.k.a Gummi 1) er kominn með vinnu hjá Íslenskum aðalverktökum eða e-u þannig, allavega.. pabbi hringdi í verkstjórann og kynnti sig voða kurteislega og allt það " já, góðan daginn, Björn Líndal heiti ég og er að athuga..." Verkstjórinn sagði: "já, ég man eftir þér Björn, þú kastaðir eitt sinn múrskeið í einn múrarann hérna eitt sumarið"

    ....WHAT?....þvílík frekja hann faðir minn. Ég sé þetta alveg fyrir mér. Múrarinn og pabbi hafa verið að múra e-ð og pabbi hefur orðið e-ð ósáttur því að múrarinn hefur beðið hann um að gera e-ð(rings any bells? HM), pabbi hefur fengið kast og bara ákveðið dúndra múrskeiðinni í viðkomandi.

    Ég og mamma hlógum okkur máttlausar þegar hann sagði hvað maðurinn hefði sagt. Hann vildi samt ekkert muna eftir þessu, hefur örugglega ekki viljað gefa upp atburðarásina....meeeeeeennn...!

    Annars eru 17 dagar í það að ég og Alma leggjumst í víking og skundum til Rómarborgar. Ef e-r vill donate-a pening í ferðasjóðinn okkar, vinsamlegast hafa samband. Okkur vantar allan þann pening sem við getum fengið..thíhí!!

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:26*


    mánudagur, maí 03, 2004

    Nýir tímar, nýjar bloggsíður..


    Nei, því miður þá er ég ekki komin með betri bloggsíðu, sorry....EN...hinsvegar...er MERIN...loksins komin með eitt stykki. Hana má finna hér. Njótið vel.

    *Vigga* skrifaði klukkan: *12:23*


    sunnudagur, maí 02, 2004

    Núll

    ég hef ekkert að segja þessa dagana.
    Vonandi hafa allir bara það gott.

    *Vigga* skrifaði klukkan: *17:33*