*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    mánudagur, maí 17, 2004

    Slúðurbækurnar

    ...fór s.s. að taka til og rakst þá á eina slúðurbók, sem ég hef nokkrum sinnum reynt að leita að en aldrei fundið!
    Þetta er held ég skemmtilegasta slúðurbókin af þeim öllum. Ansi mikið sem gekk á í henni.
    ...Alma, Kaja, Rósa & Kalli...ég held að ég setji hana bara ofan í kassa og lími fyrir. Ekki skemmtilegt ef einhverjir sem við viljum ekki að komist í hana, komist í hana. Þótt "ljóðin" séu auðvitað ómissandi og verði örugglega e-n tíma gullmolar í íslenskri menningu...eða ekki.

    Gaman þó að lesa þetta

    *Vigga* skrifaði klukkan: *14:15*


    Sumarfrííí...

    Loksins,loksins,loksins,loksins,loksins.
    Þvílík gleði, þvílík hamingja.
    Sumarið er komið og 6 dagar í Róm.

    Einkunnin úr almennunni kemur í dag.
    Er með smá hnút í maganum vegna þess.
    Vildi að þetta væri búið.

    Eurovision-partý um helgina.
    Gleðin var einum of mikil og ég komst ekki í bæinn.
    Lét henda mér út hjá Gerplu til að fara til Gumma.
    Týndi lyklinum að íbúðinni um leið og ég steig út úr bílnum.
    Móðursýkiskast og endaði á því að ég húkkaði mér far með eldri konu.
    Hún keyrði mig heim og ég fór að sofa 1:15!!
    LÚÐI!

    Fór á Butterfly Effect í gær með Guðnýju og Arney.
    Rosalega góð mynd. Verð eiginlega að horfa á hana aftur.
    hmm..ætla fara taka til í herberginu mínu. Djöfull verður papi ánægður með það!

    *Vigga* skrifaði klukkan: *13:23*