hjalp
veit ekki hvad er ad gerast fyrir bloggid! get ekki skrifad islenska stafi...mamma mia!
ef e-r veit hvernig a ad fixa thetta...lata mig vita!
Enntha meira aest pirrud
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:46*
GúbbÃfiskurinn
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:42*
Íþróttadjamm dauðans
*Vigga*
skrifaði klukkan: *12:50*
fyndin netsíða
*Vigga*
skrifaði klukkan: *15:57*
Nýjir tímar
*Vigga*
skrifaði klukkan: *12:09*
...frh...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:06*
...ÁRSHÁTÍÐIN...
ég hata þegar ég gleymi einhverju... helvÃtis kröfuréttarbókin...
Ãetta kennir manni bara að LESA EKKI à BAÃI!!!!!! maður gleypmir bara bókinni inn á baði
djöfull
æst pirruð
jahá! þá er það ákveðið.....við eftirlifandi stelpurnar(sem eru ekki að sólbaðast og passa í útlöndum) ætlum að hafa íþróttadjamm í lok mars!!!
Ef þið eruð að reyna átta ykkur á því hvað það í ósköpunum er þá er þetta tilraun til að gera e-ð fliiiiippað.
nei, en í alvörunni þá er þetta í hnotskurn svona:
Við förum í complete-sportoutfit með öööllu tilheyrandi, svitaböndum, skvísum, bakpokum, íþróttaskóm o.s.frv. Síðan ætlum við að fara í sund og e-ð og fá okkur íþróttamat að borða(veit samt ekki hvort að hann sé til e-s staðar) og fara í keilu og fíflast og fíflast...og fara á hverfis...(ha?nei?er það?) jáms!
Rétt upp hend sem finnst þetta ekki bara ótrúlega fyndið!
Þórdís(ég og þórdís erum sjálfskipuð skemmtinefnd), það væri ógeðslega fyndið ef við myndum kaupa svona stóra sundbolta til að fara með niður í bæ....og svo væru þeir útum allt haahahahhaa....
bleble
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
hahahahahah...ameríkanar geta verið svooooo asnalegir stundum....
Rakst á þessa síðu www.dumblaws.com
Þetta er s.s. síða sem finnur heimskuleg lög í BNA, þau eru meira að segja með discussion forums og live chat
hahaha...
ok, hér með ákveð ég að ég ætla hætta öllu rugli og vera rosa dugleg að læra, annars fer allt í hass!
Ef e-r sem les þetta er brilljant tíma-planari, plz. láta mig vita, ég þarf e-a svona skipulagningu....
...ég get það ekki...of ólm kona til að gera e-ð sem gengur upp...
HJÁLP
ps. 6.A húmor DAUÐANS rétt í þessu...djöfull gerði ég manninn kjaftstopp...hahahah
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
..ef e-r getur útskýrt fyrir mér alla marblettina sem ég er með og af hverju ég er að drepast í bakinu og allstaðar...þá væri gott að fá að vita það....
Ein setning:
ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA GAMAN!!!!!!
...þótt að mín hafi verið orðin töluvert hress í matnum og lítið fylgst með því sem var að gerast...
Allavega, eftir stress dauðans um daginn hittumst við nokkur hjá Ölmu og urðum samferða á ballið. Fyrst var kokteillinn í boði dómsmálaráðherra og takmarkið þann klukkutíma var að reyna græða eins mikið á þessu og hægt var, s.s. drekka,drekka,drekka....o.s.frv.
Síðan fengu allir sér sæti og við áttum okkar borð eins og gert hafði verið ráð fyrir. Það var súpa í forrétt og kjöt í aðalrétt sem ég borðaði og síðan alveg rosalega gott súkkulaði e-ð sem ég held barasta að ég hafi klárað.
Auddi og Pétur í 70 mín. komu og voru með e-ð sprell og tóku fólk í ógeðsdrykk og kanilát...!
Björn Bjarnason hélt ræðu og ég man ekkert um hvað hún var nema að mér þótti hún bara soldið fyndin..þótt ég hati það að þurfa að segja það.
..já og það var líka e-ð happdrætti og e-ð með Grím Geitskó...
svo var maður bara oozzzing around, talandi og verandi bara almennt hress...man nú ekki eftir neinu sérstöku nema að það voru rosalega margir sem fannst kjóllinn minn æðislegur! jejejej! það finnst mér gaman!
Einhvern tíma milli 3 og 4 var haldið í Kafarasalinn Nauthólsvík eftir að ég hafði fyrst ætlað að halda eftirpartý heima hjá mér en síðan kom þetta(sem betur fer) og við, sem eftir vorum, héldum þangað.
...það litla sem ég man er að það gengu vodkaflöskur um og fólk var bara látið taka góða sopa, ég man að ég datt af stólnum mínum og missti gleraugun...en fann þau aftur...og ég man líka að ég var í alvörunni farin að sjá tvöfalt ! Það hefur aldrei gerst áður og ég hélt að það gæti ekki gerst...
Ég tók leigubíl allavega með Jonna og Birki og ég upplifi það svona eins og í Bridget Jones þegar hún veltur út úr leigubílnum og hann keyrir síðan af stað. Það tók mig um 20 mínútur og eina brotna púðurdós til að komast inn í húsið...eftir að ég hafði dottið á rassinn svona tvisvar.
Ótrúlegt en satt þá týndi ég ekki einum einasta hlut. Ég kom heim með töskuna mína, símann, lyklana, myndavélina, trefilinn, perlufestina, hanskana og úrið....allt sem ég hefði mjög auðveldlega getað týnt.
..mér hefndist samt herfilega fyrir öll lætin á mánudeginum í gær, hefur aldrei á ævinni liðið jafn ógeðslega illa. Ég er ennþá í rauninni hálf slöpp!
....úff.....