*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    föstudagur, febrúar 13, 2004

    Hátíðarmálþing Orators

    Eftirfarandi eru skilaboð frá hæstvirtum hagsmunafulltrúa 1. árs laganema, Jóhannesi Eiríkssyni,fyrir þá sem nenna ekki að lesa commentin:
    "Ég ætla aðeins að misnota aðstöðu mína og minna hér með alla laganema HÍ, er kunna að lesa þessa síðu, á hátíðarmálþing Orator. Málþingið ber yfirskriftina "Samkeppnishömlur og úrræði samkeppnisyfirvalda" og fer fram sunnudaginn 15. febrúar nk. í hátíðarsal Háskóla Íslands. Flutt verða mörg áhugaverð erindi og vart þarf að minna laganema á að skyldumæting er á viðburði sem þennan - enda er hann haldinn í beinum tengslum við árshátíð okkar laganema."

    Þetta var enn eitt innlegið í vitsmunalegu umræðuna sem á víst að fara hér fram einu sinni í viku...*hóst**hóst*

    *Vigga* skrifaði klukkan: *16:25*


    jáh, og meðan ég man...það bara rættist úr þessum degi ...sem betur fer hahhahhaaa...jej...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *01:51*


    ...og Bítlarnir gefa út disk...

    jáh! Það var kominn tími til!! Fór á hverfis í kvöld og Bítlarnir slógu í geeeeeeeeeegn!!! Þeir voru geeeeðveikir jáh, hef ekki meira að segja um það! EN þeir eru loksins að fara að gefa út disk (loksins,loksins) og í kvöld var verið að taka upp til að setja á diskinn og voru klapp og lófaæfingar stundaðar ákaft...

    Gummi Bró hélt líka partý í kvöld og það virðist hafa verið mikið fjör, efast líka ekki um það, Árshátíð í MR bregst aldrei...

    hmmm...best að fara sofa því ég þarf að kaupa fallegan kjól sem ég fann í fyrramálið....Arney, you better wake up...

    bleble

    *Vigga* skrifaði klukkan: *01:45*


    fimmtudagur, febrúar 12, 2004

    Auglýsi eftir eftirpartýi mán. 16. febrúar 2004

    ...ef e-r vill halda eftirpartý og bjóða mörgum...plz láta mig vita...

    ...Kristín, það er ekki hægt að halda eftirpartý á Ítalíu...svo ekki einu sinni reyna það.... ;)

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:50*


    ömurlegur dagur

    ég er þreytt og það sem verra er...ég veit ekki af hverju ég er þreytt..ömurlegt...
    Það var hringt í mig frá Vöku áðan og spurt hvort ég væri búin að kjósa eða ekki og allt að gerast...ömurlegt..
    og helvítis netið er í rúst hérna heima... djöfull....ömurlegt
    OG frunsan mín ástkæra ER EKKI ENNÞÁ BÚIN AÐ DRULLA SÉR BURT!!!!

    bleah..

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:47*


    miðvikudagur, febrúar 11, 2004

    Long time, no see
    jæja...hef ekki bloggað í langan tíma, svo það er komin tími til..

    Fór á á laugardaginn, þetta var svaka stuð. Þær voru allar frábærar og drepfyndnar. Þetta var svona sambland af sjónvarpsþætti, uppistandi og leikriti og heppnaðist alveg frábærlega og ég bara hvet alla til að næla sér í miða sem fyrst..

    Frunsan er dauð! YYEEEEEEEEEEEEESSSSSSSS!!!! það er bara sár núna ..en hún er alveg að fara... gott að margir eru að hugsa um þjáningar mínar! Ég komst þó af því að þrátt fyrir marga galla þá hefur hún einn kost... ef þér líkar ekki við e-n geturu nuddað frunsunni upp við glasið sem viðkomandi er að drekka úr og þannig borið í hann þjáningar. ahahahahAHAAHHAHAAHAH ...

    Árshátíðin er á mánudaginn og Birkir setti mig í e-ð hálfgert bekkarráðsmannshlutverk. Komin aftur í stressið og allt það. Nú er þetta held ég allt komið á hreint og við erum komin með tvö 10 manna borð bara á ágætum stað.
    ég er orðin mjög spennt...hún verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu
    Kl. 17.00: Hanastél í boði dómsmálaráðherra...jej...
    Kl. 19.00: 3 rétta matur ...jej
    Kl. e-ð: Ball með Páli Óskari, Ragga Bjarna og Milljónamæringunum... jejejejej

    og svo erum við á fullu í að vinna í eftirpartýi...yess!

    Byrjaði líka að vinna í miðasölunni á 5stelpur.com, alveg brjálað að gera og síminn stoppar ekki! Þvílíkt vinsælt...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *18:35*