Sometimes when life shuts a door, it opens a window
....úhh Fyrsti kokteillinn okkar á 1. ári í lagadeild í dag/kvöld....
ég ætla að fara í Ræktina á eftir og fara í ljós og gufu..mmmm, best í heimi!!
Svo koma konurnar að þrífa á morgun svo ég verð að taka til í herberginu mínu, það er eins og e-r hafi tekið stóra sleif og ákveðið að hræra aðeins upp í herberginu....það er s.s. rosalega þeytt..
Allavega, ég bætti inn nýjum vitleysingi og nýju orðasambandi sem Magga Gústa vinkona heyrði krakkana á leikskólanum segja. Það er ótrúlegt hvað krökkum dettur í hug og hvað þau láta stundum út úr sér...
jæja, best að fara að gera ekki neitt til hálf 1
ps. úr hvaða mynd er þessi setning að ofan? Ein vísbending: Ég er búin að sjá hana 3-4 sinnum.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *11:55*
...og Soffía kemur á óvart...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:28*
hmmm..af hverju vantar comment dótið allt í einu á síðuna mína???
*Vigga*
skrifaði klukkan: *18:12*
Hæhæ
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:35*
Önnur sjónarmið
*Vigga*
skrifaði klukkan: *08:58*
Sniðug orð
*Vigga*
skrifaði klukkan: *14:20*
Dawson's finale
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:50*
...hmm...áttaði mig á því að síðasta færsla gæti vakið reiði e-a ónefndra þannig að ég ætla aðeins að útfæra þetta.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:08*
...and let's do this one more time...
fimmtudagur, janúar 29, 2004
Rakst á tvo fyrrverandi heimspekilegadjúptþenkjandi bekkjarfélaga mína í kaffinu mínu á Þjóbó áðan. Ég skemmti mér svo vel að áður en ég vissi af var klukkan orðin fjögur og ég átti að mæta á kóræfingu kl. 17.45, þannig að ég hafði einungis hmmm *reikn**reikn*..1 klukkustund og 30 mín. í viðbót á þjóbó. Djöfull. EN, það skiptir ekki öllu máli þar sem þessi samhittingur var ansi ánægjulegur að mínu mati.
Rann líka upp fyrir mér það ljós að ég er ekki ennþá komin yfir 6.A. Það rann upp fyrir mér skelfilegt ljós þegar ég áttaði mig á því, meðan við möluðum um ekki neitt, að ég saknaði 6.A mest. Litla Kaffihússins okkar, Kolbrúnar, Ciceros og Caesars(ég nenni ekki að muna hvernig ég beygi þetta á lat. svo Úlfur þegiðu) og Sókratesar. Ég held líka persónulega að við höfum verið mjög góður bekkur í heildina á litið, allir mjög "heimspekilegadjúptþenkjandi", þó hver á sinn hátt. Við áttum líka held ég það sameiginlegt að við vorum rjóminn af öllum þeim "týpum" sem fyrirfinnast á Íslandi.
T.d. Myndlistarkonuna, prestinn, kennarann, furðufuglinn, leikarann, metnaðarfulla týpan, rithöfundinn, kvikmyndamanninn, heimspekigúrúinn,lögfræðingurinn(eða greinilega lögfræðingarnir) tónlistarfólkið o.s.frv. (sorry, ef ég minntist ekki á alla og suma tvisvar)
Allavega benti rithöfundurinn mér á það, að einn annar fyrrverandi bekkjarbróðir minn væri með blogg í gangi og ég ákvað að tékka á því, gott blogg...bæti honum kannski bara hugsanlega á vitleysingalistann hér við hliðina á.
jæja, best að sökkva sér í fullnustugerðirnar aftur... ég kemst ekki ennþá yfir það að ég skuli ekki hafa náð þessu asnalega prófi. djöfull.
...og fyrir ykkur sem eruð sjúklega forvitin að vita um afdrif mín á vorönn þá ætla ég bara að taka heimspekina...eftir langar en samt stuttar samræður við móður mína.
ps. þessi soffía í titlinum er engin sérstök manneskja, ég hugsaði þetta út frá Veröld Soffíu ... Annað hvort átti "Soffía" í titlinum að tákna "veröldina" eða "heimspeki" ...sorry stundum er ég soldið klikkuð.
miðvikudagur, janúar 28, 2004
Ég heiti Vigdís. Ég er búin að sitja á Þjóðarbókhlöðunni, bókhlöðu allra landsmanna núna í ...hmm... 5 og 1/2 klst. og ég gæti gubbað úr ógeði.
Það er ofsalega leiðinlegt að læra e-ð sem þú hefur lært áður. Þannig að ég mæli ekki með því að falla í lögfræðinni, eða bara falla yfir höfuð, það er frekar ömurlegt.
Í fyrsta lagi féll ég í Inngangi að lögfræði sem var (að ég held og trúi) k-l-a-u-f-a-s-k-a-p-u-r frá A-Ö. Ég meina, ég klúðraði fyrstu spurningunni sem var e-ð um sérdómstóla og ég sá bara orðið dómstólar en ekki SÉRdómstólar...þvílíkt klúður! Vantaði 0.5 upp á og ég veit um svona 5 spurningar sem voru hreinn og beinn klaufaskapur, þvílík endemisvitleysa er þetta... *andvarp*.
Í öðru lagi var það Almenn lögfræði. hmmm...hef enga vörn þar á bæ. Ég var alveg búin að búa mig undir það að falla svo að þetta var ekkert sérstakt taugaáfall fyrir mig, þótt það hafi kannski verið það fyrir suma...þetta á ekki að hljóma e-ð yfirlætislega en ég held bara að ég hafi tekið þetta allt út í Inngangnum..þá var ég í taugaáfalli í marga daga eftir á.
En jæja, allavega þá sit ég hérna á bókhlöðunni og glósa eins og brjálæðingur hluti sem mér finnst ég kunna úr inngangnum og það er hræðilega óþolandi. Ó-Þ-O-L-A-N-D-I
Ég er ennþá að reyna að gera upp við mig í hverju ég eigi að vera og hverju ég eigi að sleppa núna á vorönninni. Nokkrir möguleikar eru til staðar:
1. Stjórnskipunarréttur:
Kostir: Mikið af því er mjög tengt almennunni svo að þ.a.l. er ég að rifja kannski örlítið upp um leið.
Gallar: Rosalega massíft námskeið.
2. Sifja- og erfðaréttur:
Kostir: frekar auðlesið virðist vera og lítur út fyrir að þetta sé helmingi minni vinna en í stjórnskipuninni. Gallar: Sú sem kennir það er ekkert æðisleg og svo er þetta líka alveg DREPLEIÐINLEGT.
3. Heimspekileg forspjallsvísindi:
Kostir: 1 tími á viku e. hádegi, skemmtilegt námsefni.
Gallar: Gæti orðið svolítið flókið..annars hef ég ekki hugmynd...
Vill einhver hjálpa mér hérna???
Frekari framlenging á umræðunni um fólk sem fer illa með annað fólk.
Gamall bekkjarbróðir(og reyndar núverandi líka) hafði þetta að segja um málið:
Lögmál Úlfs: “Maður fer ekki illa með fólk sem manni er ekki sjálfum illa
við... nema manni sé borgað fyrir það. Hatur er alltaf góð ástæða.”
...ég var nú ekki alltof sammála þessu fyrst..en ég er búin að skipta um skoðun og ég held að fólk sem hefur farið illa með annað fólk eigi alveg skilið að láta fara illa með sig.
Þótt að auðvitað alltaf sé hægt að oftúlka hatur.
Hatur er vandmeðfarið hugtak...
þriðjudagur, janúar 27, 2004
Eitt sem mig langar að koma á framfæri varðandi þennan dálk, Sniðug orð.
Í fyrsta lagi eru þetta bara allskonar orð sem ég eða einhverjir sem ég þekki nota eða ég hef heyrt e-s staðar og finnst sniðug. Þetta er oftast ekkert sérstaklega góð íslenska, en það er ekki heldur það sem vakir fyrir mér. Ef ykkur finnst þið eiga orðin, komið því endilega á framfæri hérna í commentinu fyrir neðan. :)
ps. ef ykkur leiðist eru tveir snilldarleikir hérna fyrir neðan..
Í gær var sorgardagur.
Í gær var síðasti þátturinn af Dawson's Creek...E V E R!
Í gær grét ég með látum yfir sjónvarpinu.
Í gær drullaðist Joey loksins til að ákveða hvort hún ætlaði að vera með Dawson eða Pacey.
Í gær dó Jen.
Í gær tók Jack Amy litlu að sér og ákvað að ala það upp sem samkynhneigður pabbi.
Í gær fékk Dawson að tala við Spielberg.
Heiðruð sé minning Dawson's Creek. Þennan þátt er ég búin að horfa á í nokkur ár. Síðustu tvö árin hef ég verið frekar mikið hooked á honum og meira að segja látið hann ganga fyrir í prófum(sem greinilega hefur ekki reynst vel ..ha ha ha) og nú er hann bara búinn. Ég trúi þessu ekki.
Kannski ég ætti ég að taka einn dag í að syrgja. Má samt ekki gera of mikið af því þar sem Friends er að byrja í næstu viku, held ég, og ég er búin að vera undirbúa mig með því að horfa á alla 9. seríuna.
Já, það er merkilegt hvernig forgangsröðin er hjá mér....þarf e-ð að vinna í því.
mánudagur, janúar 26, 2004
Ég þoooli ekki fólk sem fer illa með annað fólk. Nei, ég meina af hverju? Hver er tilgangurinn að "screw people over". Leiðir það eitthvað gott af sér? ....góð pæling að fara í gang hérna... En ég veit það að auðvitað gerir fólk stundum það alveg óvart og auðvitað er ekkert við því að gera.. En fólk sem ráðskast með annað fólk viljandi og fer illa með það er óþolandi fólk.
jáhh, þar hafið þið það :)
Föstudagur: Skóli, Bókhlaða, Ræktin, Heim, Pravda, Hverfisbarinn...
ég hef aldrei lært jafnlítið á svona löngum tíma og á föstudaginn...þetta sannaði bara það að það er ekki hægt að læra á föstudögum, þá er dæmið bara búið.
Það voru s.s. svona skemmtilegheit á föstudaginn á Pravda, í lögfræðinni, sem var mjög fínt...Hins vegar var alveg drepleiðinlegt á Hverfis...ok, kannski ekki drepleiðinlegt en það var rosalega undarlegt fólk þarna..eins og virðist oft vera á föstudögum...
Laugardagur: Vakna, þunn, Friends, þunn, borða, passa, hjá Möggu, Hverfisbarinn, Prikið, Hverfisbarinn...
Ahh, já þetta var skemmtilegur dagur, fyrir utan það að ég var þunn og litlu sætu frænkurnar mínar komu í heimsókn og þurftu að njóta mikillar athygli, sem var allt í lagi, en bara ekki þegar ég var orðin OF sein.
Fór til Möggu, þar við stelpurnar hittumst og skemmtum okkur mjög vel yfir ferðasögum Möggu og Þórdísar, sem sumar hverjar voru mjög vafasamar... :) Við komumst í Bailey's og Piparmyntulíkjör og þá var þetta over...einu sinni drukkið þú getur ekki hætt...eða e-ð í þá áttina....hmmm....
Fórum á hverfis og það var mjög gaman... sérstaklega þar sem Magga átti mjög eftirminnilegan dans upp í sófa á hverfis með bleikt fjaðurskraut...Konan sem átti það var ekki ánægð þegar hún sá Margéti með fjaðurskrautið milli fótanna í mjög vafasömum dansi.
Sunnudagur: Þynnka, litlar frænkur, þunnur, Friends, Stjörnutorg, Friends, Paycheck, heim, lúlla.
Þetta var mjög stuttur úrdráttur á því sem gerðist um helgina...
Nú ætla ég að fara læra...tími til kominn :)
p.s. ég þoooli ekki stráka sem fara illa með stelpur, óþolandi. Common, ég meina'ða... hvaða kikk fá þeir út úr því að veltast með þær fram og til baka og gera vinkonur þeirra um leið hálf klikkaðar..
Strákar, pretty please...hættið að hangsa og leggið spilin á borðið, án þess að svindla alltaf..
ohh, pirrandi helvíti (afsakið orðbragðið)