Nýr bloggari bætist í hópinn
jæja, fyrir ykkur sem vitið það ekki er Kristín Björg Ítalíufari loksins komin með bloggsíðu eftir mikið þóf landa á milli(það er ekki auðvelt að útskýra alla hluti fyrir manneskju sem er mörg þúsund kílómetra í burtu, Á MSN!
En Kristín mín, til hamingju og vertu dugleg að skrifa og segja okkur sögur frá útlandinu.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *14:03*
ég þooooli ekki að sofa yfir mig. Það er mjög óþægilegt. Það verður allt öfugsnúið og ómögulegt. Í morgun svaf ég yfir mig. Það var ekki gott. Núna er ég mygluð. Ekki gott.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *09:27*
ok, ekki að ég sé e-ð að gorta mig eða neitt svoleiðs...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *21:01*
...já, vitiði...mér leiðist á bókhlöðunni...verð að gera e-ð í þessu...disable-a netið held ég að sé góð hugmynd og gleypa netkortið......
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:43*
hæ
*Vigga*
skrifaði klukkan: *15:41*
hahaha...ég er Abraham
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:45*
Góðan og blessaðan daginn!
*Vigga*
skrifaði klukkan: *10:48*
hmmm...datt í hug að hafa svona einu sinni á dag "ég þoli ekki...". Sumum finnst það kannski ógeðslega asnalegt en mér er bara alveg sama, svoleiðis fólk er bara fólk sem þykist vita e-ð en veit í raun ekkert.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *22:34*
Tilraun nr. 1
Í gær fór ég á Hverfis. Ég segi eins og Hildur Droplaug, kannski að við ættum að flytja lögheimili vort þangað. Það var mjög fínt, hittum Mána og hann sagði okkur það að hann væri bara að fara til Nepal í hálft ár. Nepal, það er held ég mjög gaman að fara þangað, er þó ekki viss um að ég myndi þola það að vera þar í hálft ár. Kannski hefði maður bara gott af því að láta tuskast aðeins með sig, maður er orðinn svo pjattaður hérna heima. Höfuðborgin í Nepal er í 2000 metra hæð og rétt hjá er Mount Everest, eins og ég skildi Mána, hef aldrei verið góð í landafræði. Þú þarft s.s. að læra að anda að þér mjög þunnu lofti myndi ég halda.
Það svo óhugnalegt þegar það rennur upp fyrir manni að maður er að verða fullorðinn..
Allir að fara út að skoða heiminn, í nám, að trúlofast, giftast, eignast börn o.s.frv.
Leiðinlegt að segja það folks, en við erum að verða hundgömul og áður en þið vitið þá verðið þið að hitta gamla bekkinn úr menntó á 20 ára reunioni á sveitasetri í Borgarfirði...þið skiljið hvað ég á við...
...úff...hætta hugsa um þetta og FARÐU AÐ LÆRA
fimmtudagur, janúar 22, 2004
EN ÉG FANN ÚT SJÁLF HVERNIG Í ANDSK.. ÉG EIGINLEGA Á AÐ SETJA ÍSLENSKA DAGSETNINGU.
NB. ...alveg sjálf...
ég er að velta því fyrir mér hvort að ég eigi að fara á Bítlana í kvöld, það í rauninni mælir allt gegn því, en mig langar samt, það er svo langt síðan ég hef farið...
og þetta er fyrir Arney...ég er með sár í nefinu, kvef, illt í fætinum og túrverki....hahahahahaha....
Annars, tók annað quiz..
Forrest Gump!
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla
í dag:
þooooooli ég ekki fólk sem kemur alltaf of seint, hvar sem er, hvenær sem er. Þið skiljið hvað ég á við, fólkið sem segist alltaf ætla koma á ákveðnum tíma en kemur aldrei á þeim tíma.
ég las í e-u blaði hmm..verst að ég man ekki hvaða blað það var..held eitt af þessum hundrað aukablöðum sem mogginn er með...um hvenær þú mátt mæta of seint og svo aftur hversu seint þú megir mæta. SVO, ég legg til að þið öll þarna úti sem aldrei getið drattast til að mæta á skikkanlegum tíma finnið þetta blað og lesið ykkur til um þetta og reynið svo að bæta úr þessu óþolandi djö..helv..já ok!
Þessi quiz eru algjör snillld!
Ég var ofsalega dugleg í morgun og vaknaði kl. 08.38 og fór í Ræktina. Á mínum mælikvarða er það eins og ég væri Laxness og Ræktin væru nóbelsverðlaunin...
..
..Kannski ekki alveg nógu góð líking en þið vitið hvað ég á við.
Það að fara í líkamsrækt er mjög heilsusamlegt..og oft gaman. Hlaupabrettið er alveg frábært, það er bara svo leiðinlegt hvað maður nennir ekki að fara..
En svo er það auðvitað spurning af hverju maður nennir ekki ef manni finnst svona gaman...
..jú, það er, þú verður bara að sætta þig við það, letin.
Letin er tæki djöfulsins..
Allavega, komin á bókhlöðuna og ætla að læra eins og vitleysingur í allan dag..eða allavega þangað til ég fer á kóræfingu... annað er óráðið..
Það er rosalega gaman að fylgjast með fólkinu á bókhlöðunni...það eiginlega best, þótt það fari í taugarnar á sumum, þegar síminn hringir hjá fólki....þvílík viðbrögð!! haha
ok, hætta þessu bulli og fara að læra
miðvikudagur, janúar 21, 2004
í dag ætla ég hafa tvennt:
Í fyrsta lagi þoooooli ég ekki fólk sem fer í skólann og á þjóðarbókhlöðuna og þegar það tekur sér kaffi, þá talar það ekki um neitt annað en skólann..ég vona að þið skiljið um hvað ég er að tala... Ég er að tala um fólkið, svo að ég vitni í Sókrates, sem þykist vita e-ð, en veit í raun ekkert. Maður á ekki að þykjast vera klár í e-u sem þú ert nýbyrjaður að læra..þú kemur strax upp um þig. Sorry, but very true.
Í öðru lagi þoooooli ég ekki þegar fólk sötrar, bítur í skeiðina, kyngir óþægilega hátt, sker svo fast í matinn sinn að það ískrar í disknum o.s.frv. Það fer það mikið í taugarnar á mér að ég verð alveg BRJÁLUÐ..Þeir sem þekkja mig vita að ég verð alveg.... þið vitið hvað ég á við...
Allavega...
Þið verðið að gefa mér smá breik hérna fyrstu dagana meðan ég er að læra á systemið og koma ímyndunaraflinu af stað....
Jæja, nú er ég loksins komin með bloggsíðu eftir fjölda áskorana....sem er reyndar bara ein, gömul áskorun frá einni frænkunni
Það að blogga held ég að sé aðeins erfiðara verk heldur en margur heldur...
ætla að hugsa málið...
kemur kannski e-ð sniðugt...
vonandi...