*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    laugardagur, mars 20, 2004

    Loftmynd af Íslandi

    Fékk e-mail sem innhélt þetta , loftmynd tekin 28.janúar s.l.

    Stórmerkilegt....meiri snjór heldur en ég hefði haldið.


    *Vigga* skrifaði klukkan: *17:22*


    fimmtudagur, mars 18, 2004

    Who cares?...

    Ég sá Kolbein x-grískukennara úr MR labba yfir Nesveginn áðan með dekk.

    ...bara ef e-m finnst það áhugavert...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *16:38*


    Ég þoooli ekki...

    Ætla loksins að láta verða að því að búa til svona lista með 100 atriðum sem ég þoli ekki til að fá útrás. Það er sá tími mánaðarins. jæja, ok, let's start.

    1. Ég þoli ekki að vera á þeim tíma mánaðarins, með verki.
    2. Ég þoli ekki lárétta rigningu, rok og vont veður.
    3. Ég þoli ekki Sigga Storm á Stöð 2.
    4. Ég þoli ekki að Stöð 2 skuli vera með óstabilan fréttatíma.
    5. Ég þoli ekki fólk sem þykist vera e-ð gáfað og artífartí, en er það bara ekki í raun og veru.
    6. Ég þoli ekki að vera með skítugt og beyglað hár.
    7. Ég þoli ekki svartsýni.
    8. Ég þoli ekki þegar fólk er með álit annara á heilanum.
    9. Ég þoli ekki þegar fólk er með útlitið á heilanum.
    10.Ég þoli ekki þegar stelpur kvarta sífellt undan því hvað þær séu "feitar".
    11. Ég þoli ekki að eiga aldrei pening.
    12.Ég þoli ekki að þurfa að biðja mömmu og pabba um pening.
    13. Ég þoli ekki að ég hafi ekki náð þessum prófum.
    14. Ég þoli ekki hvað mér finnst óhollt gott og hollt vont.
    15. Ég þoli ekki hvað ég er að komast í mótsögn við sjálfa mig með því að skrifa þennan lista.
    16. Ég þoli ekki þegar fólk verður of drukkið til að vera það sjálft.
    17. Ég þoli ekki þegar ég verð svoleiðis.
    18. Ég þoli ekki að ég er næstum því alltaf þunn á sunnudögum.
    19. Ég þoli ekki að það sé ekki komin Maí.
    20. Ég þoli ekki þegar fólk er aldrei með GSM símann sinn. Why have it if you don't use it????!?!??!
    21. Ég þoli ekki að gamall maður hafi keyrt á mig.
    22. Ég þoli ekki að ég er alltaf í hvítum sokkum.
    23. Ég þoli ekki þegar fólk setur út á það að ég sé í hvítum sokkum.
    24. Ég þoli ekki þegar fólk skammar mig.
    26. Ég þoli ekki ruslið í herberginu mínu.
    27. Ég þoli ekki þegar fólk sötrar...
    28. ... og bítur í skeiðina
    29. ...og sker svo fast að það ískrar í disknum.
    30.Ég þoli ekki að fá gæsahúð og klígju bara við tilhugsunina.
    31.Ég þoli ekki hvað strætóbílstjórar eru tillitslausir.
    32.Ég þoli ekki að taka strætó.
    33.Ég þoli ekki hvað það er dýrt í strætó.
    34.Ég þoli ekki hvað allt er dýrt á Íslandi.
    35.Ég þoli ekki að ég sé ennþá með far eftir teinanana.
    36.Ég þoli ekki að ég hafi verið með teina.
    37. Ég þoli ekki að tvær af 4 í litla vinkonuhópnum mínum séu e-s staðar langt í burtu.
    38.Ég þoli ekki að 3. apríl sé ekki kominn.
    39.Ég þoli ekki að ég verð þunn í fermingu daginn eftir.
    40.Ég þoli ekki hvað Skúli dyravörður á Hverfis getur verið leiðinlegur.
    41.Ég þoli ekki að það hafi bara 45 komist í kokteilinn sem er á morgun.
    42. Ég þoli ekki að það sé ekki hægt að kaupa Pepsi Max á bókhlöðunni.
    43. Ég þoli ekki þegar aðrir skipa mér fyrir.
    44. Ég þoli ekki þegar ég hef ekkert að gera.
    45. Ég þoli ekki að ég geti ekki setið við og lært allan daginn.
    46. Ég þoli ekki hvað ég er löt.
    47. Ég þoli ekki hvað ég er mikil svefnpurrka.
    48. Ég þoli ekki að hárið á mér vex fram.
    49. Ég þoli ekki hvað hárið á mér vex hratt.
    50. Ég þoli ekki hvað það er dýrt að lita hárið.
    51. Ég þoli ekki hvernig upprunalegi liturinn er.
    52. Ég þoli ekki að vera með sveip.
    53. Ég þoli ekki þegar fólk er illa til haft þegar það á að vera vel til haft.
    54. Ég þoli ekki fólk sem kann ekki mannasiði.
    55. Ég þoli ekki þegar fólk er matvont.
    56. Ég þoli ekki að batteríið í símanum hans Gumma sé ónýtt og hann kaupi ekki nýtt eða nýjan síma.
    57. Ég þoli ekki þegar Gummi vaskar ekki upp þangað til að það er ekki einu sinni til hrein teskeið.
    58. Ég þoli ekki þegar Magga segir mér að ég megi ekki "tala um það".
    57.Ég þoli ekki þegar fólk fær e-ð á heilann og talar ekki um annað.
    58. Ég þoli ekki að ég sé með hús á heilanum.
    59. Ég þoli ekki að ég sé næstum því blind.
    60. Ég þoli ekki að mér finnist óþægilegt að nota linsur.
    61. Ég þoli ekki að ég er með litla og feita putta.
    62. Ég þoli ekki hvað ég er lítil.
    63. Ég þoli ekki hvað ég er föl.
    64. Ég þoli ekki að vita að stóllinn sem ég sit á er að rispa parketið.
    65. Ég þoli ekki að herbergið mitt er alltaf í rúst.
    66. Ég þoli ekki hvað föt taka mikið pláss.
    67. Ég þoli ekki að ég geti ekki safnað fallegum nöglum.
    68. Ég þoli ekki að ég þoli ekki neitt mikið meira.
    69. jú, Ég þoli ekki að taka glös úr uppþvottavél...ííííkk...
    70. Ég þoli ekki trúbadorana sem voru á Hverfis um daginn.
    71. Ég þoli ekki að vera aldrei í Lögbergi.
    72. Ég þoli ekki þegar fólk er á Away á MSN er samt ekki á Away.
    73. Ég þoli ekki þráðlausa netið hérna heima.
    74. Ég þoli ekki að tölvan mín er klámfeng.
    75. Ég þoli ekki Ármann Snævarr og bókina hans.
    76. Ég þoli ekki að fara með skítug gleraugu í bíó.
    77. Ég þoli ekki fólk sem talar í bíó.
    78. Ég þoli ekki fólk sem kann ekki að setja símann á Silent og lætur hann hringja í bíó..OG TALAR SVO Í HANN!!!
    79. Ég þoli ekki fólk sem nagar penna.
    80. Ég þoli ekki þegar það er búið að rífa miðann utan af gosflösku.
    81. Ég þoli ekki þegar fólk gerir sér ekki grein fyrir "all the hard work" sem liggur að baki stundum..
    82. Ég þoli ekki þegar ég gleymi að segja takk við afgreiðslufólk.
    83. Ég þoli ekki snobb.
    84. Ég þoli ekki að þurfa stundum að vera stíf.
    85. Ég þoli ekki að mér sé stundum illt í bakinu
    86. ...og sé oftast með óþægindi allstaðar
    87. ...sérstaklega þá í fætinum.
    88. Ég þoli ekki að ég get ekki hlaupið.
    89. Ég þoli ekki að ég sé með sama nef og allir í pabbafjölskyldu.
    90. Ég þoli ekki þegar fólk svindlar sér í gegnum garðinn minn.
    91. Ég þoli ekki að gluggarnir í stofunni leki í ákveðinni vindátt og rigningu.
    92. Ég þoli ekki að maðurinn sem gerði við þá hafi flaskað á þessu.
    93. Ég þoli ekki þegar fólk heldur að ég sé heimsk.
    94. Ég þoli ekki þegar fólk gerir lítið úr því hvað ég er að gera.
    95. Ég þoli ekki að það séu bara 5 atriði eftir og ég viti ekki um neitt meira.
    96. Ég þoli ekki að missa af Friends eða ER.
    97. Ég þoli ekki hvað Davíð Oddsson er búinn að vera alltof lengi í stjórnmálum
    98. ...og hvað hann er samt góður penni.
    99. Ég þoli ekki að Steingrímur og Össur þurfi alltaf að vera á móti öllu.
    100. Ég þoli ekki hvað ég get bullað mikið....


    vá þetta var erfitt...en mér líður samt miklu betur og nú get ég farið að læra.

    leitier meiter.

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:49*


    miðvikudagur, mars 17, 2004

    Uppgötvanir hægri vinstri afturábak og áfram

    Á síðustu mínútunni hef ég gert 3 uppgötvanir.

    1. Trausti Jónsson er ekki skemmtilegur veðurfræðingur, Siggi Stormur er eins og guð í samanburði við hann.
    2. Thawed þýðir afþýdd, sem er mjög asnalegt orð.
    3. Undirmálsmaður er sá sem finnst rangt að kippa undan manni fótunum sem er skíthæll.

    Hahh, þetta var áhugaverð mínúta.


    *Vigga* skrifaði klukkan: *19:39*


    Orðarugl


    Ég get ekki sagt Kellog's Special K...ég segi bara Spelljos Special Spey...sem er ekki tölvuleikur eins og sumir gætu haldið(ahahhaahahhahaahhaahahah). Það er s.s. alveg sama hvað ég reyni ég get ekki sagt Kellog's Special K (það er líka soldið erfitt að skrifa það) ...Spelljos Special Spey....Spelljos Special Spey...
    Fruit 'n' fibre er líka miklu betra svo það kannski skiptir ekki miklu máli.

    Ég lenti líka í smá vandræðum með að senda sms á laugardagskvöldið og átti mjög erfitt með að senda ekki 4 sms til Arneyjar í röð...biðst afsökunar á "mood-killer" AHHHHHHHHHHAHAHAHAHAH.....


    ...ég er á fullu í mínum eigin einkadjóks heimi hér...

    back to study

    leiter smeiter

    *Vigga* skrifaði klukkan: *13:47*


    þriðjudagur, mars 16, 2004

    Fróðlegt quiz

    ...jáh, kannski ætti ég bara að hætta í þessu lögfræðistappi og byrja i rappi....hahaahaahahah





    How WHITE are you?

    Brought to you by the good folks at sacwriters.com
    .

    *Vigga* skrifaði klukkan: *16:24*


    mánudagur, mars 15, 2004

    Niðurtalning

    Vildi bara benda forvitnum og óforvitnum á það að það eru 18 dagar í BOMBUNA.

    PS. þessu er ætlað að vera leyndarmál, ég er bara að vera pirrandi og gera forvitið fólk alveg tjúllað.

    AAAAAAAAAAAAAAAAAAHAHAHAHAHAHAHAH......AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHAHAHAHAHAH....


    jáh, lærilærilær

    *Vigga* skrifaði klukkan: *12:37*


    sunnudagur, mars 14, 2004

    þreyytturrrr

    Ég er of þreytt til að gera e-ð af viti. Ég geri hvort eð er aldrei neitt af viti. hmmm..

    Nýtt orð á listann: að stakka

    Að stakka: Þegar viðkomandi framkallar hljóð með því að smella tungunni í gómnum einhvern veginn. Ég get ekki gert það. Orðið var fundið upp af mér þegar ég var lítil hvumpin stelpa....ég átta mig ekki alveg á þessu orði hvumpinn....kannski er það kvumpinn en mér finnst það asnalegt.
    Allavega á ég að hafa sagt þetta orð þegar Óskar eldri bróðir var alltaf að gera þetta og ég þoldi(þoli) illa hávaða og hljóð sem ég er ekki vön.
    "...Ekki stakka!!!!!" ...þetta kemur líka betur út ef þetta er sagt með Guðnýjar-tón. híhí.

    -Ég var víst líka lífslogandi hrædd við e-ð intro sem kom þegar fréttirnar voru að byrja og eitt skiptið tók ég á rás út úr herberginu þegar ég sá að það var að byrja og faldi mig örugglega e-s staðar.
    -Dreg þá ályktun, ásamt móður minni, að þessi "hljóð/hávaðafóbía" hafi verið vegna þess að þegar ég var kornabarn var stór stjórnlaus vörubíll næstum því búinn að keyra yfir okkur mömmu þar sem hún hélt á mér í fanginu.
    -Ég er ennþá smeyk við þessa trukka og no baby can drive my truck..eins og segir í laginu hennar Möggu.

    ok, þetta er komið út í rugl og ég ætla snúa mér aftur að lærdómnum...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *15:13*