*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    þriðjudagur, apríl 27, 2004

    Lífið er skemmtilegt stundum

    Jáh, fyrr í kvöld bað Gummi Palli mig um að keyra hann í bíó. Ekkert mál. Við leggjum af stað og er ferðinni heitið í Kringlubíó. Þegar við erum komin e-ð áleiðis átta ég mig á því að partýljósið er í full blossom. jæja, ok, ég hlýt að komast heim, getur nú ekki verið það tómur. FOOOOOOOOOKKKK! ég er ekki fyrr búin að keyra niður brekkuna af efra-bílastæðinu hjá Kringlunni en að hann er búinn á því. GREAT! Ég var í gulum buxum og rauðri flíspeysu og með úfið hár, ekkert veski, enga peninga og ENGANN SÍMA. (ég heyrði röddina í Gumma klingja í höfðinu á mér: Þú átt alltaf að vera með veski og símann, hvert sem þú ert að fara). Jæja allavega, mín náði að drösla bílnum út í kant og setja hættuljósin á(gott að maður lærði það nú í ökuskólanum) og arkar síðan af stað í átt að bensínstöðinni sem hún mundi eftir að væri þarna rétt handan við hornið. Ég labba fyrir hornið og við mér blasir skelfing. ÞETTA ER SJÁLFSAFGEIÐSLU-FOKKING-STÖÐ! Ég byrja að stappa niður fótum og bölva og maður sem var að dæla á bílinn í mesta sakleysi lítur upp og hugsar með sér að hér sé geðsjúklingur á ferð. Allavega, þá fer ég inn á Borgargrill. Það er e-r búlla sem er staðsett þarna, sem betur fer og fæ að hringja heim. Eftir 15 mín. útskýringar í símann, bæði við mömmu og pabba, segir pabbi að hann ætli að hringja aftur í mig eftir smá. Skellti næstum því á mig án þess að fá símann í búllunni. jesús bobby. Ég fletti DV og lét mér leiðast og stuttu seinna hringir síminn og það er til mín. Mamma. Mamma er þá búin að hringja á leigubíl. Verkefni leigubílsins var að fara heim og taka kortið hennar mömmu og fara síðan á bensínstöðina sem ég var, fara í hraðbanka, fara á bensínstöð og fara aftur að bílnum. JESÚS!! Allavega, leigubílstjórinn var þessi ÚLTRA KAMMÓ KARL! Hann vissi sko alveg hvernig þetta ætti að ganga fyrir sig og sagði að það væri bensínstöð og hraðbanki á olísstöðinni í Álfheimum. Jæja, við förum þangað og bensínkallinn og leigubílstjórinn voru bara í böddís leik úti á plani meðan ég hljóp inn og ætlaði að taka út.....en hvað?
    ÞAÐ VAR ENGINN FOKKINGS HRAÐBANKI, die motherfucker die...jæja stelpan á Olísstöðinni bendir mér á að það sé hraðbanki á Kentucky og ég geti BARA HLAUPIÐ ÞANGAÐ! meinaða, hvað heldur hún að ég sé? ...e-r íþróttafrík? sko, þótt ég sé í gulum íþróttabuxum er ég ekki íþróttanörd, við skulum hafa það á hreinu.
    Leigubílstjóramaðurinn var svo góður að lána mér 1000 kr. þangað til við gætum drullast í hraðbankann. Jæja eftir eina u-beygju þá er ég komin inn á Kentucky og get loksins tekið út pening og farið með brúsann til að koma bílnum mínum on the road again. Eftir að hálfur lítri af bensíni hafði farið bæði á mig og bílinn vorum við back on the road again. Það er hinsvegar alveg stækjandi bensínlykt í bílnum og ég er ekki bensínlyktarfan. oj. hausverkur dauðans.

    ég er búin að vera reyna að ákveða mig hvort að þetta hafi verið verra en sunnudagurinn góði síðasta sumar þegar ég varð bensínlaus á miðjum gatnamótum, í sandölum, í rigningu, í engri úlpu...grútþunn.

    hmm....

    *Vigga* skrifaði klukkan: *23:32*


    Fyndin síða


    Haha, Gummi minn benti mér á óggillega fyndna síðu sem er mjög svo í samræmi við umræðu gærdagsins.

    maður ætti kannski bara skella sér á eitt stykki af hverju ;)

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:15*


    mánudagur, apríl 26, 2004

    Stjórnmál og Ísland

    Hér með lýsi ég frati yfir íslensk stjórnmál, ríkisstjórnina og stjórnarandstöðuna. ÞIÐ ERUÐ ÖMURLEG! bara, sorry, en það er satt, því miður. ÖMURLEG.
    Enginn stjórnmálamaður á Íslandi er við mitt hæfi, þeir eru næstum því allir jafn miklir hálfvitar. Ef þeir eru klárir lögfræðingar, hafa þeir enga siðferðiskennd. Ef þeir eru góðir ræðumenn, hafa þeir ekkert merkilegt/gott að segja. Ef þeir hafa siðferðiskennd, vita þeir ekkert um stjórnmál eða að þeir eru bara þarna af því að!

    Djöfuls sirkúsalýður upp til hópa. Það ætti að taka þetta fólk og senda þau í samband við raunveruleikann 101.

    ohh...ýkt pirruð á þessum ösnum....

    *Vigga* skrifaði klukkan: *19:25*