ný könnun
setti inn nýja könnun....
ég hata sokkabuxur
*Vigga*
skrifaði klukkan: *19:40*
Sniðugt
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:40*
bílpróf
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:20*
annar staður, annar tími
*Vigga*
skrifaði klukkan: *16:35*
...hmm...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *20:07*
Ég er....

You're Brazil!
You're athletic, charming, and probably a good dancer.
Unfortunatley, you don't really mind chopping down the rain forest, and you probably
consider homeless people expendable in certain circumstances. Of course, your
personality is so diverse that it's hard to track down exactly what you're like. You
definitely like Pele, the World Cup, and shouting "gooooal" at the
top of your lungs.
Take
the Country Quiz at the href="http://bluepyramid.org">Blue Pyramid
hmm..ég var búin að gleyma því að afi var aldrei með bílpróf...og bróðir hans tók flugpróf áður en hann tók bílpróf og amma er svaka driver...meina þá að þú elskar manninn sem fann upp bílbeltið..
hmm...skrýtið
ég er í gulum páskagalla á þjóbó það er gaman.
föstudagur, apríl 09, 2004
alltof góð sjónvarpsdagskrá og alltof gott veður. í tilefni þess er ég í gula gallanum mínum. hann æpir á mig. GUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUULLLLTT!!!!!!!
ég ætla kenna ykkur ýkt skemmtilegan leik.
Ok, það eina sem þið þurfið er bíll, bensín og fólk sem finnst gaman að hlæja.
Markmiðið er að pissa í sig af hlátri.
Þið farið á rúntinn, best er að vera í fullum bíl og með skrýtna tónlist á, kannski íslensku stöðina FM 94 e-ð. Svo verður bara byrja öskra. T.d. ef þið sjáið koma rautt ljós framundan þá öskra allir RAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAUUUUUUUUUUUTTTTTTTTT!!!!! og síðan tekur kannski bíll fram úr ykkur og þá segja allir BÍÍÍÍÍÍÍLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLL!!!!!!!!!!!!!!!!! þannig að í rauninni gengur leikurinn út á það að öskra allar hreyfingar sem tengjast akstrinum: stopp, bið, bíll, fólk, hundur, köttur, staur, grænt, gult, rautt....o.s.frv.
Þetta er ýkt skemmtilega asnalegur leikur.
..ég ætla fara læra núna...ég er búin að vera ÝKT óDuGlEg....
blehg...
ég óska öllum þeim sem geta farið að gera e-ð skemmtilegt í kvöld, velfarnaðar og megi þeir eiga ömurlegt kvöld.
ég er bitur af því að ég þarf að læra
fimmtudagur, apríl 08, 2004
hæ. ég heiti Vigdís. ég lifi óspennandi lífi. ef þú veist ekkert hver ég er, farðu þá af síðunni. það er ekkert merkilegt hér. ég hef ekkert merkilegt að segja. BLEHHHHHHH
get ekki beðið eftir að komast til Rómar og burt frá þessu landi þar allir komast upp með allt...AUÐVELDLEGA Í ÞOKKABÓT!
Hvað þykist hann Björn Bjarnason eiginlega vera? Ef við værum ekki Íslendingar, heldur Frakkar, Spánverjar eða Ítalir eða e-ð þá hefði hann þurft að segja af sér, MEÐ SKÖMM! ...en nei...við látum bara valta yfir okkur enn einu sinni. hverju munar þótt það gerist einu sinni enn? - Þetta er hugsanagangur flestra þegna þjóðfélagsins: "hvað get ég svo sem gert, ég hef engin áhrif..o.s.frv." TÝPÍSKT ÍSLENDINGAR. Aldrei stöndum við upp og segjum "NEI, NÚ ER KOMIÐ NÓG, HINGAÐ OG EKKI LENGRA, VIÐ LÁTUM EKKI KOMA SVONA FRAM VIÐ OKKUR!" heldur felum við okkur á bak við e-a grímu og skömmumst okkar á milli, í laumi, inn á heimilunum þar sem við höldum að ríkisvaldið nái ekki í skottið á okkur og lúskri á okkur.
Ef við veltum þessu aðeins fyrir okkur, hversu ÖMURLEGT er það þegar við, sem einstaklingar, getum ekki tjáð okkur um neitt því annað hvort erum við svo hrædd um að:
1. þeir menn sem stjórni þessu landi komi og bíti okkur í rassinn.
2. almenningsálitið muni dæma okkur.
3. við lítum út fyrir að vera e-ð klikkuð, sögusagnirnar ekki lengi að komast upp á yfirborðið.
Hugsið ykkur, allt óréttlætið sem við verðum fyrir á hverjum degi og tjáum okkur ekkert um það.
Ríkisstjórnin segir: "HEI, fjölgum í víkingasveitinni og höldum síðan partý fyrir yfirmenninna og bjóðum upp á frítt vín!(ég veit ekkert hvort þeir gerðu það en við vitum öll hvað ég er að meina)"
Ríkisstjórnin segir: "HEI, spörum þessvegna frekar í heilbrigðismálunum og hendum veika fólkinu út á götur!"
....ég gæti haldið endalaust áfram að tjá mig um undarlega "eyðsluhætti" þeirra manna sem stjórna þessu landinu
og hver eru þá viðbrögð þjóðfélagsins?
...Læknar og löggur koma einu sinni í Kastljós og hún Svanhildur spyr þá spjörunum úr með fallega ljósa hárið sitt.
...Síðan er það bara búið. PUNKTUR.
...og þeir komast upp með þetta...dag eftir dag...ár eftir ár...
jæja, ég ætla fara hætta kvarta...en fyrst ætla ég að koma nokkrum hlutum á hreint:
1.Ég er ekki hvorki lögfræðingur né stjórnmálafræðingur og satt best að segja er ég mjög ópólitísk.
2.Ég þoli bara ekki óréttlæti og ég þoli ekki að ég sé ekki nógu gáfuð og vel máli farin til að standa upp og segja e-ð.
3.Ég nenni ekki að fá e-a baunaspýtingu hérna frá e-m Heimdellingum sem sjá ekki sólina fyrir sínum eigin flokk, maður verður að skoða báðar hliðar
4.OG ekki segja þá "JÁ, en þú sérð þetta bara frá einni hlið" ...ég hef ekki nógu mikið vit á þessu til að geta séð báðar hliðar, ég er bara að tjá mig sem almennur borgari, sem veit ekkert meira en er matað ofan í mig í sjónvarpi og útvarpi og á netinu.
5.Ég er heldur ekki að segja með þessu að ég styðji stjórnarandstöðuna, þeir eru jafnvitlausir...Alþingi er opinbert grín fyrir mér, salur fullur af e-m vitleysingum.
6. Þessi færsla er birt með fyrirvara um allar villur sem kunna að vera til staðar, hvort sem þær eru málfræðilegar eða annars eðlis.
...úff útrás dauðans...
mánudagur, apríl 05, 2004
Meri.
Jáh, nú fáið þið að vita stóra leyndarmálið, bombuna.
Við stelpurnar stofnuðum Kvennaklúbbin Merina.
Við pöntuðum gula galla frá henson og boli merkta klúbbnum okkar og fórum fullar í keilu í göllunum. Við fórum bara í jökkunum og bolunum niður í bæ. Það var ÓTRÚLEGA GAMAN. Við borðuðum saman nautakjöt og kartöflur og bernaise sósu og vorum orðnar VEL hressar þegar við fórum að steikja kjötið og okkur Guðnýju fannst voða skemmtilegt að sjá sósuna prumpa. ha ha ha ha. Við dýfðum líka jarðaberum í súkkulaði...veit ekki hvort það var sniðugt þar sem við vorum allar útklíndar í súkkulaði. Sérstaklega Þórdís. Fórum í drykkjuleik sem er mjög skemmtilegur en maður verður of drukkinn og það er ekkert gaman. Daginn eftir fórum við flest allar annað hvort í vinnuna, að læra eða í fermingarveislu. Ég fór í fermingarveislu og það fyrsta sem ég gerði var að hlaupa inn á klósett og ....gubba. Ekki skemmtileg byrjun. Var þó gott að sumir gátu skemmt sér yfir því.