Nýtt orð
Bætti inn nýju orði á listann minn hérna fyrir neðan, á ská. Það er orð sem Sverrir Bergsteinsson datt í hug að nota, þegar hann var frekar hress, í partýinu góða á laugardaginn. Þetta orð er kertavasi. Ekki veit ég hvernig stráklingnum datt þetta í hug en líklegast hefur hann tekið tvö orð kertastjaki og blómavasi, skellt þeim saman með smá skvettu af
Havana Club í bjór, og notað þetta skemmtilega orð yfir blómavasa.
...og síðan drukkið bjórinn og Havana Club-ið úr kertavasanum...
jáh, þetta var fyndið.
Kertavasi fullur af Havana Club
*Vigga*
skrifaði klukkan: *14:19*
Kringluferð
*Vigga*
skrifaði klukkan: *20:59*
Ljósmyndir
*Vigga*
skrifaði klukkan: *11:27*
Stafrófið
*Vigga*
skrifaði klukkan: *17:16*
Niðurstöður úr könnun
*Vigga*
skrifaði klukkan: *10:57*
Fordæmi
föstudagur, mars 12, 2004
Jáh, eftir mikið þras og vesen komumst ég og Arney loksins af stað upp í Kringlu, eftir að amma hafði sótt mig og ég hafði keyrt hana heim og keyrt síðan út á Nes...right. Jæja, allavega, við erum á leiðinni niður í Kringlu og erum nýkomnar út úr innri hring og erum að nálgast ljósin á mótum Hringbrautar og Njarðargötu. Ljósið verður gult þegar ég er u.þ.b. 10-15 metra frá ljósunum og auðvitað held ég áfram þar sem ég hefði aldrei getað stoppað nema að fá svona 5 bíla aftan á mig. Allavega áður en við vitum er e-r gamall skarfur er búinn að keyra á bílinn hennar ömmu!!!!!!! Hann var að taka vinstri beygju og "tók ekki eftir mér".
Ég hef aldrei lent í árekstri, hvorki verið í bíl eða orðið valdur af árekstri í umferðinni. Ég og Arney fengum vægt taugaáfall(þó var það aðallega ég sem var að fara yfir um). Maðurinn lagði e-s staðar lengst í burtu og var líka ca. hálftíma að drulla sér til okkar. Við hringdum á lögregluna og á meðan hún var að koma SETTIST MAÐURINN AFTUR Í BÍLINN HENNAR ÖMMU!!!! rosalega fór það í taugarnar á mér, ekki nóg með það heldur fór hann líka að reyna spjalla. Þá var mér allri lokið.
Löggan kom þó loksins og við fórum inn í bíl með þeim og þar var tekin skýrsla. Lögreglan var mjög svo almennileg fannst mér og hlustaði á allt sem ég hafði að segja af mikilli sannfæringu(að mér fannst allavega).
Þeir létu mig líka fá e-n bækling með upplýsingum hvað skuli gera í framhaldi af árekstri o.s.frv. sem mér fannst mjög fínt þar sem ég sá af e-m myndum í þessum bækling að ég er í 100% rétti.
Þetta atvik fékk mig bara virkiega til að hugsa um eldra fólk í umferðinni og þá sérstaklega karlmenn. Ég veit að það er þeir fara í ökumat og svona en ég held bara að það sé ekki nóg. Karlmenn geta verið svo þrjóskir og þá sérstaklega eldri menn. Þeir eru svo vissir um að allt sem þeir gera sé 100% rétt og það þýðir ekkert að véfengja það. ÓÞOLANDI. Það sem mér fannst nú samt verst var að hann fór að reyna að reyna gera lítið úr því sem hann hafði gert rangt og sagði að ég hefði nálgast hann frekar hratt. Það fór rosalega í mig!
jæja, best að fara í gott heitt bað.
fimmtudagur, mars 11, 2004
jáh, myndirnar úr Kokteilnum hjá ESSO sem við 1. ársnemar fórum í fyrir mjög löngu síðan eru loksins komnar á netið og eru því ekki lengur lost in cyberspace...
Skemmtilegar myndir og sumar soldið ruglaðar. Mæli með því að fólk kíkji á þær. Reyndi að setja link á soldið fyndna mynd en það mistókst og virðist ekki ætla að takast.
jáh, það er soldið fyndið þegar fólk er búið að fá sér aðeins of mikið af fríu áfengi..
tralalalalaaaaaa
miðvikudagur, mars 10, 2004
stafrófið er skemmtilegt fyrirbæri og þess vegna er ég búin að raða öllum þessum vitleysingunum, sumir hafa meira að segja e-ð viturlegt að segja, eða allavega þykjast hafa eitthvað viturlegt að segja, í stafrófsröð
þetta var ofsalega löng setning og ég veit að margir úr gamla 6.A fá hroll
hahahahaha.....ha
jæææja, þá er komin ný könnun og því ætla ég að birta niðurstöður gömlu könnunarinnar hér: Hvað er planið um helgina??.
Bjór: fimmtud., föstud.,lau....o.s.frv. 2 atkvæði
Geðveikt partý á laugardaginn 10 atkvæði
Ekkert 1 atkvæði
Læra 3 atkvæði
Bjór 4 atkvæði
Samtals 20 atkvæði
Jahá þar hafiði það...fólk fór s.s. í rosalega skemmtilegt partý á laugardaginn heima hjá mér...sem mér meira að segja sjálfri fannst skemmtilegt þrátt fyrir að vera á nálum allan tímann(sérstaklega þegar ónefndir voru farnir að drekka bjórinn úr kertavasa...blómavasa ÞETTA HEITIR BLÓMAVASI!!!)
Það var líka ýkt skemmtilegt niðri í bæ, sérstaklega eftir að ég fann twix í töskunni minni inn á klósettinu á Hverfis og bara borðaði það jáhh!....gaman gaman
En ég nenni ekki að segja frá allri vitleysunni sem ég....og Arney vorum að gera...ausa bjór yfir allt og jafnvel í augun á fólki og svona....hmm já skemmtilegt kvöld
þriðjudagur, mars 09, 2004
Loksins búin að komast í gegnum þennan 100 blaðsíðna kafla um fordæmi í bókinni hans Sigurðar... mikil hamingja sem fylgir því en hún varir ekki lengi þar sem strax á bls. 295 kemur sérstakur viðauki um heimild dómstóla til að setja réttarreglur.
Mér finnst ég vera lesa pínulítið sömu hlutina aftur og aftur, en það er víst svona. Lögfræðingarnir hafa gaman af því að ræða hlutina í hringi....og ég sem á eftir að lesa skoðun Skúla, aftur, þar sem hann fer í sömu hringekjuna, þó oft með skemmtilega skringilegum dæmum. mmmm..
Keypti líka bókina Um lög eftir Thomas Aquinas í þýðingu Þórðar Kristinssonar sem Íslenska bókmenntafélagið er nýbúið að gefa út, í fyrsta skipti sem hún kemur út á íslensku.
Mundi líka þá eftir því að við í 6.A lásum smá texta eftir þennan sama mann í latínu í fyrra. Þetta var e-ð skringileg setning. Allavega, þá var þetta oft mjög skondin lesning þar sem Tómas hafði hugsanlega ekki fengið alveg réttar staðreyndir um Ísland. Verst að ég man ekki hvað var svona fyndið. Ef e-r af fyrrverandi 6.A meðlimum man eitthvað, endilega deilið með okkur .....og þið munuð drottna.............hahahahah.....
jæja, best að fara lesa þennan litla viðauka sem virðist ekki vera eins óyfirstíganlegur og aðrir kaflar í þessum mikla doðranti...
Ekki að þetta sé slæm bók, hún er oft mjög skemmtileg fyrir svona sögunörd eins og mig, hún getur bara sýnst svolítið löng...
tralllalalalaaaaaa...
ps. 25 dagar í B-0-B-U(na)!!!!! (fyrir þá sem ná ekki bubba djókinu þá er ég að meina B-O-M-B-U!)