*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    föstudagur, mars 26, 2004

    ég er á leiðinni til...

    ....RÓMAR....!!!

    Já, það er staðfest...ég er að fara...

    Búin að borga 24.500 krónur í staðfestingargjald hjá Stúdentaferðum.

    Nú þarf ég bara að vera þræll fjölskyldu minnar þangað til að ég fer út til að hafa unnið mér fyrir þessu spanderíi.

    over and out

    *Vigga* skrifaði klukkan: *16:54*


    ég er ....

    ógillega löt við að blogga(glogga) þessa dagana...
    aðalástæða nr 1: ég er að læra
    aðalástæða nr 2: ég lifi ómerkilegu lífi ergo...
    ...aðalástæða nr 3: ég hef ekkert að segja

    Aukaástæður eru miklu fleiri...


    hmmm...Rósa x - 6.A meðlimur er loksins búin að koma sér upp heimasíðu í hinni miklu Ameríku þar sem menn hafa forseta sem er bjánabarn. Já, you heard me....hann er bjánabarn...

    Ekki það að þetta komi Rósu e-ð við..en Rósa, ef þú lest þetta...plz láttu Jakob setja upp commentakerfi þannig að við getum nú átt í e-s konar samskiptum...

    Bjánabarn er nýja orðið á listanum mínum. Ég var líka búin að finna e-ð annað orð en man ekki hvað það var.

    Ég labbaði niður í bæ áðan til að kaupa yfirstrikunarpenna, sem skiptir kannski ekki öllu máli, en allavegana ákvað ég að labba fram hjá húsinu mínu, sumir myndu jafnvel segja að ég væri með þetta hús á heilanum...ég veit það ekki. Bygging þess gengur allavega vel og ég hlakka til að sjá final reasult.

    Spurning dagsins er því: Hvaða hús er þetta?

    ps1. Ég vil lýsa yfir vonbrigðum á commentaleysi fólks hérna...meinaða....Baldvin er besti vinur minn núna og hann Vandal sem vil persúveia mig til að kjósa Bush..Vandal þú gleymir einu.....ÉG HEF EKKI KOSNINGARÉTT Í USA ASSHOLE...

    ps2. 8/9 dagar í hið mikla leyndarmál!!!

    kannnski fullmikið af hinu góða þarna
    jæja, back to study

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:46*


    þriðjudagur, mars 23, 2004

    ég er ...

    ...ÓÓGILLEGA SVANGURRRRRRRRRRRR!

    Það er núll til að borða á þessu heimili já, þar sem ég á bróður sem étur allt sem munni kemst næst...hér fara heilu bílfarmarnir af Drykkjarjógúrti og Fruit 'n' fibre bar á dag...þetta er RUGL! Er ekki hægt að fá sér bara eina drykkjarjógúrt og eitt fruit 'n' fibre....

    Nú hef ég s.s. ekkert að borða og ég er mjög ósátt...

    bleh


    Fór annars á Passion of Christ með Gumma á sunnudaginn, í tilefni af 3 ára afmælinu okkar. Hún var...uu...veit ekki hvaða orð ég ætti að nota....stórvirki getum við kannski sagt og hún hafði e-ð element þannig að hún situr lengi í þér eftir á, ég átti t.d. mjög erfitt með svefn þarna aðfararnótt mánudags...
    Merkilegt líka að þetta skuli vera mynd sem sé í e-u topp 10 yfir aðsóknarmestu myndir allra tíma, man ekki alveg nr. hvað, og það er ekki sagt eitt einasta orð á ensku...merkilegt nokk. En hún er að stærstum hluta á hinu undarlega tungumáli Armeisku og svo að e-u leyti á latínu. Þetta latínutal fór pínulítið í taugarnar á mér þar sem ég hefði viljað sjá það öðruvísi gert...mér fannst talandinn vera pínulítið of mikið byggður á ítölsku og frönsku...Þeir hefðu frekar átt að hugsa aftur á bak hvað varðar framburð. jæja, ekki hægt að gera neitt í því núna.
    Smá ráðlegging til ykkar sem eigið eftir að sjá hana...ekki kaupa neitt eftir hlé nema í mesta lagi að drekka.
    Annað sem fór líka í taugarnar á mér var að þegar maður kom út úr bíóinu þá stóð fólk frá krossinum að deifa e-m flyers og reyna að fá fólk í söfnuðinn...alveg fáránlegt.

    well. ég ætla að finna e-ð að borða...áður en gummi palli nær í síðasta brauðið......snögg snögg...






    *Vigga* skrifaði klukkan: *14:36*