STÓRfréttir
ætlaði að vera löngu búin að þessu en tvennt stórmerkilegt gerðist í gær og ég sagði ekki bofs, nema skvetti fram e-i ælusögu...svona er nú forgangsröðunin. hí hí hí
jæja allavega...
Nr. 1 þá fékk ég símtal frá mínum heittelskaða þar sem hann lýsti því yfir (með mikilli tilhlökkun) að hann hefði fengið símtal frá Alþjóðaskrifstofunni...og nú kunna menn/konur að spyrja sig "so what?!?" en þannig er nefnilega mál með vexti að ekki fyrir svo löngu síðan sótti hann um í skóla í Japan og þetta símtal var til að tilkynna honum það að hann hefði komist inn. JÍÍÍÍÍHAAAAAAAAAA! Til hamingju elsku ástin mín, it's a dream come true. :)
...Annars vil ég ekki hugsa um það meira af því að þá verð ég líka leið. punktur. en nú er ég bara ótrúlega ánægð að hann skyldi hafa komist í gegn sérstaklega þar sem hann er Japansfan nr. 1, 2 og 3. Til hamingju aftur Gummi minn!
Nr. 2 þá átti Droplaug, mín ástkæra vinkona sem nú býr í heitu landi e-s staðar langt í burtu, 21 árs afmæli fyrst af okkur gömlu grúppunni. Umfjöllun um hana má sjá á síðunni hennar Þórdísar og verð ég að samsinna Þórdísi að Dropa hefur fáránlegustu en jafnframt skemmtilegustu stæðalagningar-takta í heimi. jesús ;)
...það er líka eitt auka:
Nr. 3 Þriðjudaginn 13 apríl voru líka 7 ár síðan við stelpurnar fermdumst í Dómkirkjunni, víha... stuð.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *17:13*
illur andi
*Vigga*
skrifaði klukkan: *09:37*
Ælusögur
*Vigga*
skrifaði klukkan: *12:29*
það að missa coolið
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Það er mjög furðulegt hvað ég kann margar ælusögur, sem eru, believe it or not, ekki allar af mér. (Þótt ég eigi nú nokkrar góðar).
Bróðir(Gummi Bró) minn sagði mjög skemmtilega ælusögu við matarborðið á Páskadag, mjög viðeigandi. Hún er e-n veginn svona:
Mömmu og pabba var boðið að koma í laxveiði í Kjarrá með öllu tilheyrandi, voða fancy og Gummi Palli fékk að koma með. Það er e-r hefð þarna í Kjarrá(veit ekki hvort það er á fleiri stöðum) að halda Humarveislu eitthvert kvöldið og okkar maður fær auðvitað að sitja með fólkinu og taka þátt í hátíðinni. Það má með sanni segja að þetta hafi verið humarveisla ef marka má orð foreldra minna og bróðurs því réttirnir voru um 8 talsins. Allavega þá hefst okkar maður handa við að borða en það vill svo óheppilega til að við hlið hans situr þýsk kona, skessa mikil og virtist vera að reyna að koma á ímynduðu kapphlaupi milli bróður vors og hennar og átti það til að ýta aðeins í hann ef hann virtist vera að hægja e-ð á átinu.
Á u.þ.b. 4-5 rétti var okkar maður orðinn vel mettaður en hélt þó áfram og kláraði sitt.
Síðar um kvöldið leggst fólk til hvílu og þar á meðal bróðirinn. Eftir að hafa sofið í smástund vaknar hann og finnur mikla ólgu í iðrum sér. Hann hleypur því inn á klósett og er þar næstu 3-4 klukkutíma, mjög upptekinn við að losa sig við allan humarinn sem hann hafði látið ofan í sig.
Hann skríður inn í rúm aftur rúmlega 6 um morguninn og kl. 7 er hann rifinn á fætur með foreldrum mínum til að fara í special veiðikennslu við að kasta flugu. Hann harðneitaði og sagðist ekki vilja deyja út í á. Þrátt fyrir hörð mótmæli var hún móðir mín bara þver og sagði að þetta væri once in a lifetime oppertunity(hvernig sem það er skrifað) og reif strákinn út í á þar sem hann var settur skjálfandi og fölur með fluguveiðistöng og var látinn húka þar allan daginn.
pant ekki.
Það sem verra var er það að Gumma Palla fannst humar æði áður en þetta gerðist og nú getur hann ekki einu sinni horft á hann án þess að fá hrylling niður í rass.
mánudagur, apríl 12, 2004
...er einn versti hlutur sem ég veit.
Það hefur gerst nokkrum sinnum fyrir mig, þ. á m. inni á Devito's þegar það var snjór og nýjar flottar flísar og mín bara flaug og datt...þess vegna er fjárans mottan.
Allavega, ónefnd vinkona missti coolið fyrir utan Nóatún í dag. það var ýkt fyndið...hún varð öll blaut. AHHAHAAHHAHA
hafiði tekið eftir því að Devito's virðist vera styttra orð en Devitos??
merkilegt nokk.
ég las yfir mig í dag.
bíó í kvöld....mmm nachos með ostasósu, best í heimi.