Sjálfboðastarf í boði
Hæhæ!!!
Vill e-r gera bloggið mitt voða flott og flókið í sjálfboðavinnu(ég er búin að spyrja að þessu. já. ég veit.)
Það er hægt að hafa samband með því að skrifa í commentin eða senda mér e-mail! þið verðið bara finna það út sjálf...hvað e-mailið er.
plís...þetta er ljótasta blogg í heimi.
*Vigga*
skrifaði klukkan: *17:27*
Málaskólar og interrail
*Vigga*
skrifaði klukkan: *17:21*
Fúsi Kaktus látinn
*Vigga*
skrifaði klukkan: *15:47*
..bætti inn nokkrum nýjum vitleysingum...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *14:13*
Róm og ég
*Vigga*
skrifaði klukkan: *13:04*
jaháá...
*Vigga*
skrifaði klukkan: *18:54*
Nýr listi
*Vigga*
skrifaði klukkan: *10:46*
brandari vikunnar
*Vigga*
skrifaði klukkan: *18:36*
110 atriði um mig
*Vigga*
skrifaði klukkan: *17:49*
leiðrétting
jæja...fundur nr. 1 haldinn í gær til að reyna koma e-i mynd á þetta litla stelpuferðalag sem á að eiga sér stað í sumar.
Hugmyndin er s.s. sú að vera ca. einn mánuð í málaskóla og síðan ætlum við að vera í tvær vikur til viðbótar í Róm að skoða staðinn...betur....og svæðið í kring.
Þá myndum við leggja af stað úr Róm um 15.júlí. Ferðinni væri þá ekki heitið beint aftur heim á Frón, heldur erum við að spá í að fara með lestum, flugvélum, bílum, fótgangandi o.s.frv. upp Evrópu að skoða alla þá staði sem maður hefur aldrei skoðað...jaahá!
Ég er náttúrulega strax farin að missa mig í þessu og er búin að gera lista yfir allar borgir sem mig langar að fara til:
Róm...auðvitað
Capri, sem er reyndar eyja
Pisa
Flórens
Bologna
Feneyjar
Milano
Rivieran
Monaco
Nice
Cannes
Marseille(getum pikkað Beggu upp í leiðinni)
Avignon
Barcelona
Paris
London
jáh, þetta er bara dágóður listi.
ATH. Þessi listi endurspeglar þó ekki skoðanir hinna stúlknanna sem ætla að ferðast með mér, heldur eingöngu mínar persónulegu skoðanir.
Ef e-r er með fleiri uppástungur...plz tell me!
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
Eftirfarandi pistill er tekinn af heimasíðu litla bróður
"Fúsi Kaktus lést að heimili sínu, Tjarnargötu 28 einhverja helgina. Minningarathöfn mun fara fram í innflutningspartýi Fífils Bonzai trés. Blóm eru afþökkuð.
Fúsi var ætíð mjög hógvær kaktus, en lét þó aldrei troða sér um tær. Hann sat bara þarna á kommóðunni úti í horni í partýum og horfði á mannskarann skemmta sér. Hann drakk bara bjór, vodka og einstökum sinnum kók eða kristal sem hafði verið skilinn eftir niðri í kjallaranum og unni sér vel við það. Fúsi var þó ekki það aðgerðalaus að hann léti nokkurn mann bara taka sig og fleygja sér um, heldur stakk hann viðkomandi ærlega, hann elsku Fúsi.
Ævi Fúsa er margslungin. Hann fæddist í Blómaval árið 1998 og var fljótt keyptur þaðan sem lítill græðlingur og honum veitt nýtt húsnæði, heima hjá okkur. Þegar kjallarinn góði kom til sögunnar fluttist hann þangað niður og fljótt fór að bera á alkóhólisma hjá honum sem hann náði sér aldrei af. Fúsi lifði þó spennandi lífi í góðra viða hópi og er óhætt að segja að hér hafi einn lífsreyndasti kaktus sögunnar verið til staðar.
Mig langar að ljúka þessari minningargrein á eilitlu ljóði sem ég samdi um hann Fúsa minn.
Ó, Fúsi kaktus
Nú ertu dauður
Með allt það áfengi sem þú vilt
og allar þær kaktusapíur sem þú girnist
Nú ertu hjá Guði
Bless, Fúsi minn"
Vil koma á framfæri leiðréttingum varðandi ævi Fúsa gamla:
Fúsi var fenginn sem afleggjari frá Guðnýju Mörtu æskuvinkonu minni fyrir tíu árum og fyrstu árum ævi sinnar eyddi hann inn í herbergi hjá mér...þar sem hann óx eiginlega ekkert og var nokkrum sinnum næstum því dáinn.
Eftir að Mamie kom og var hjá okkur lifnaði Fúsi nú heldur betur við og eiginlega svo mikið að þegar Mamie fór var hann settur fram á kjallaratröppur og fór síðan smátt og smátt niður í kjallara þar sem hann mátti dúsa afgang ævi sinnar...o.s.frv.
Fyrir þá sem vita ekki hvernig Fúsi kaktus dó þá var hann myrtur köldu blóði af hári Móu nokkrar.
..mér fannst svo sorglegt að hafa geðveikt fáa...
ps. auglýsi eftir e-m til að gera bloggsíðuna mína flottari ókeypis...
Get ekki beðið að fara til Rómar!!!!
búin að finna allavega einn skóla sem mér líst vel á:
Dilit International House
..Stúdentaferðir mæla líka með honum
ég ætla að tala við stúdentaferðir.
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
shakin' that ass!

Barbie Got Back! Go you! You're the closest thing
ever to a true black Barbie. Shake that fat
ass of yours.
If You Were A Barbie, Which Messed Up Version Would You Be?
brought to you by Quizilla
Jahá! ég var beðin um að gera nýjan lista þar sem hinn snérist of mikið um aðra en mig.
Vona þetta sé nógu gott fyrir ykkur þarna...
meinaða.
110 atriði um MIG
1. Ég heiti Vigdís Eva Líndal og er fædd í Reykjavík 2. nóvember 1983.
2. Ég á heima í Tjarnargötunni, fallegustu götu Reykjavíkur.
3. Ég er ÝKT stolt af því að vera Líndal.
4. Ég á 5 systkini, 3 hálf og 1 al.
5. Ég hef átt yndislegan kærasta í 3 ár sem heitir sama nafni og bróðir minn, systursonurminn, frændi minn og afi minn..
6. Ég á margar bestu vinkonur, sumir myndu segja of margar.
7. Grunneiningin er samt 5 manna hópur.
8. Við erum búnar að þekkjast í 10 ár.
9. 2 af þeim eru í útlöndum, við hinar söknum þeirra.
10. Ég djamma oft.
11. Sumir segja kannski of oft og mikið.
12. Ég er ekki sammála því ég verð sjaldan dauðadrukkin.
13. Þótt það hafi komið fyrir.
14. Ég álít mig Vesturbæjarbúa.
15. Þótt ég hafi ekki flutt í það hverfi fyrren ég var 10 ára.
16. Þegar ég var nýflutt gerðist Lóa svo djörf að banka upp á og spyrja eftir mér.
17. ég var ekki heima, var á kóræfingu.
18. Við fórum seinna út að hjóla saman.
19. Lóa kenndi mér að það skiptir ekki máli hvað aðrir eru að hugsa um þig, þú ert bara þú.
20. Ég var í kór í mörg ár.
21. Ég söng með honum í Péturskirkjunni í Róm.
22. Þegar ég fór aftur til Rómar í sumar, fór ég næstum að grenja í Péturskirkjunni
23. Ég get verið ofvirk.
24. Mér er líka oftast sama hvað öðrum finnst um mig.
25. Ég er glaðvær
26. Ég er hávær.
27. Hárið á mér vex óhugnalega hratt.
28. Ég er hugsjónamanneskja
29. og þess vegna dreymir mig um að gera stóra hluti.
30. Ég þekki 4 óléttar konur/stelpur.
31. Ég á tvær yndislegar ömmur.
32. Þær eru báðar pínulítið létt marineraðar.
33. Eins og ég.
34. Ég lærði á píanó.
35. Ég elska hús.
36. Ég er húsafriðunarsinni.
37. Ég er mjög ópólitísk.
38. Davíð Oddsson er frændi minn.
39. Ég vissi að Bandaríkjamenn myndu fyrr eða seinna lenda í smá vandræðum útaf þessu Íraksstríði.
40. Píanókennararnir mínir voru alltaf leiðinlegir.
41. þess vegna hætti ég og sé ekki eftir því.
42. Mér finnst leiðinlegt að mála mig.
43. Ég er þó með hárið mitt á heilanum.
44. Ég borða óhollan mat.
45. En borða þó núna Fruit 'n' fibre í morgunmat.
46. Ég reif einu sinni prinsessukjól á jólaballi í þriðja bekk.
47. og var hent inn í dauða herbergið
48. ég og kristín drukkum næstum heila tequila flösku fyrr um kvöldið.
49. Við höfðum ekkert borðað um daginn.
50. Gatið á kjólnum var mjög stórt og allir sáu sokkabuxurnar og örugglega e-ð meira líka.
51. ég fer alltaf á hverfisbarinn á fimmtudögum að hlusta á Bítlana.
52. Bítlarnir eru bestir.
53. Ég er alltof mikið á Hverfisbarnum.
54. Ég gekk í Ísaksskóla, Álftamýrarskóla, Melaskóla, Hagaskóla, MR og er núna í lögfræði í HÍ.
55. Bestu bekkir sem ég hef verið í: 5.-7. bekkur B í Melaskóla og 5.-6.A í MR.
56. Ég lærði latínu og grísku.
57. Ég hef lesið Síðustu daga Sókratesar e. Platon bæði á íslensku, ensku og forngrísku.
58. Ég fékk 7 á stúdentsprófi í grísku.
59. Samt kunni ég ekki neitt.
60. Ég elska Ítalíu.
61. Ég fór með fornmáladeildinni til Rómar síðasta sumar.
62. Það var frábært.
63. Ég og Alma erum að fara til Rómar í sumar.
64. Ef hún hættir við þá lem ég hana og hún veit það.
65. Kristín Björg býr út í Róm.
66. Hún kom í óvænta heimsókn 20. des
67. Ég og Magga fórum næstum því að grenja þegar hún stökk út úr runnanum.
68. Ég, Lóa og Kristín vorum einu sinni mjög góðar vinkonur.
69. Við ofsóttum einu sinni sjoppukonu í Texas.
70. Ég átti heima í Bandaríkjunum þegar ég var 3-4 ára.
71. Þar var ég í skóla, 4 ára bekk.
72. Ég grét mikið þegar skólinn minn brann.
73. Einu sinni kom ég hágrátandi úr skólanum af því að kennarinn hafði verið að tala um gróðurhúsaáhrif.
74. Ef ég eignast e-n tíma stelpu vil ég að hún heiti Eva Sólveig.
75. Evu nafnið kemur frá ömmu minni.
76. Ég átti hund.
77. Hann hét Vaskur, eins og vaskir menn.
78. Vaskur var létt marineraður.
79. Einu sinni keypti ég bara föt í Fantasíu.
80. Það voru rándýr föt.
81. Ég á frænda sem heitir Jonni.
82. Í 10-12 ára bekk var ég með 4 strákum...haha
83. Ég fékk fyrstu gleraugun mín á öskudag í 10 ára bekk
84. sem þýðir að á miðvikudaginn verð ég búin að ganga með gleraugu í 11 ár.
85. Ég er með III. stig í söng.
86. Ég elska að dansa.
87. Ég set oft góðan disk í heima í stofu og dansa eins og brjálæðingur.
88. Og syng með líka.
89. Herbergið mitt er alltaf í rúst.
90. Pabbi hatar það.
91. Pabbi hefur stundum tekið til fyrir mig.
92. Ég hata að nota linsur, sama hvað Magga segir.
93. Kærastinn minn á 3 eða 4 leikjatölvur, Ipod, öfluga tölvu, heimabíó og margar DVD myndir.
94. Hann er í japönsku í háskólanum.
95. Síðasta mynd sem ég fór á í bíó var Along came polly
96. Hún var "allt í lagi"
97. Mér er illt í tönnunum.
98. Ég ætti að vera læra núna.
99. Ég er að fá endajaxl.
100. Ég var með teina
101. Ég var einu sinni með appelsínugult, ljóst og fjólublátt hár allt í einu.
102. Ég var einu sinni kölluð Frutty.
103. Þá var ég lögð í einelti.
104. Ég forðast ennþá fólkið sem lagði mig í einelti.
105. Ég var líka með rautt stutt hár.
106. Einu sinni, held ég, var ég bara ofsalega ljót. hahaahahah
107. Ég slúðra mikið, en veit hvenær ég á að halda kjafti...oftast ;)
108. Sumir segja að ég sé rosalega lík pabba í útliti en sé með svipaðan persónuleika og mamma.
109. Ég á það til að hnerra mjög asnalega.
110. Ég pissa mjög oft.
mánudagur, febrúar 23, 2004
Arney sagði mér þennan í gær:
Einu sinni voru tvö typpi að fara í próf. Eitt typpið var stinnt og stressað en hitt var bara frekar afslappað og lint. Stinna typpið spurði þá lina typpið:
"Af hverju ert þú svona afslappaður?"
Lina typpið sagði þá:
"æ, það var munnlegt próf áðan"
hahahaha....
Þetta er svona listi eins og er e-ð voða í tísku núna. Alma hálfpartinn skipaði mér að koma með einn svona.
Ég reyndi en þetta urðu óvart 110 atriði en ekki 100 ...bara ég er blaðurskjóða.
Ég vona enginn móðgist.
1. Ég heiti Vigdís Eva Líndal og er fædd í Reykjavík 2. nóvember 1983.
2. Ég á heima í Tjarnargötunni, fallegustu götu Reykjavíkur.
3. Ég er ÝKT stolt af því að vera Líndal.
4. Ég á 5 systkini, 3 hálf og 1 al.
5. Ég hef átt yndislegan kærasta í 3 ár sem heitir sama nafni og bróðir minn, systursonurminn, frændi minn og afi minn..
6. Ég á margar bestu vinkonur, sumir myndu segja of margar.
7. Grunneiningin er samt 5 manna hópur.
8. Við erum búnar að þekkjast í 10 ár.
9. 2 af þeim eru í útlöndum, við hinar söknum þeirra.
10. Ég djamma oft.
11. Sumir segja kannski of oft og mikið.
12. Ég er ekki sammála því ég verð sjaldan dauðadrukkin.
13. Þótt það hafi komið fyrir.
14. Ég álít mig Vesturbæjarbúa.
15. Þótt ég hafi ekki flutt í það hverfi fyrren ég var 10 ára.
16. Þegar ég var nýflutt gerðist Lóa svo djörf að banka upp á og spyrja eftir mér.
17. ég var ekki heima, var á kóræfingu.
18. Við fórum seinna út að hjóla saman.
19. Lóa kenndi mér að það skiptir ekki máli hvað aðrir eru að hugsa um þig, þú ert bara þú.
20. Ég var í kór í mörg ár.
21. Ég söng með honum í Péturskirkjunni í Róm.
22. Í þeirri ferð var Birkir í mútum og sagði ekki eitt orð.
23. Ég get verið ofvirk.
24. Mér er líka oftast sama hvað öðrum finnst um mig.
25. Ég er glaðvær
26. Ég er hávær.
27. Hárið á mér vex óhugnalega hratt.
28. Systir mín er menntaður jarðfræðingur og hárgreiðslukona en vinnur samt í pródúksjón fyrirtæki með hinum systkinum mínum.
29. Þessi sama systir á 4 stráka og einn eiginmann.
30. Hin systir mín er ólétt.
31. Það verður 9. barnabarn mömmu minnar.
32. Það elsta er 17 ára, næstum því jafngamall og bróðir minn.
33. Ég lærði á píanó
34. Fékk alltaf leiðinlega kennara.
35. Ég elska hús.
36. Ég er húsafriðunarsinni.
37. Ég er mjög ópólitísk.
38. Davíð Oddsson er frændi minn.
39. Ég vissi að Bandaríkjamenn myndu fyrr eða seinna lenda í smá vandræðum útaf þessu Íraksstríði.
40. Bróðir minn sem er að verða 18 á kærustu úr Hafnafirði.
41. Ég veit ekki mikið meir.
42. Hann heldur oft partý niður í kjallara.
43. Ég er alltaf að reyna að leiðbeina honum í lífinu.
44. Oftast er það þó misskilið.
45. Ég er að reyna láta hann ekki gera sömu mistök og ég gerði.
46. Ég reif einu sinni prinsessukjól á jólaballi í þriðja bekk.
47. og var hent inn í dauða herbergið
48. ég og kristín drukkum næstum heila tequila flösku fyrr um kvöldið.
49. Við höfðum ekkert borðað um daginn.
50. Gatið á kjólnum var mjög stórt og allir sáu sokkabuxurnar og örugglega e-ð meira líka.
51. ég fer alltaf á hverfisbarinn á fimmtudögum að hlusta á Bítlana.
52. Bítlarnir eru bestir.
53. Ég er alltof mikið á Hverfisbarnum.
54. Ég gekk í Ísaksskóla, Álftamýrarskóla, Melaskóla, Hagaskóla, MR og er núna í HÍ.
55. Bestu bekkir sem ég hef verið í: 5.-7. bekkur B í Melaskóla og 5.-6.A í MR.
56. Ég lærði latínu og grísku.
57. Ég hef lesið Síðustu daga Sókratesar e. Platon bæði á íslensku, ensku og forngrísku.
58. Ég fékk 7 á stúdentsprófi í grísku.
59. Samt kunni ég ekki neitt.
60. Ég elska Ítalíu.
61. Ég fór með fornmáladeildinni til Rómar síðasta sumar.
62. Það var frábært.
63. Ég og Alma erum að fara til Rómar í sumar.
64. Ef hún hættir við þá lem ég hana og hún veit það.
65. Kristín Björg býr út í Róm.
66. Hún kom í óvænta heimsókn 20. des
67. Ég og Magga fórum næstum því að grenja þegar hún stökk út úr runnanum.
68. Ég, Lóa og Kristín vorum einu sinni mjög góðar vinkonur.
69. Við ofsóttum einu sinni sjoppukonu í Texas.
70. Ég átti heima í Bandaríkjunum þegar ég var 3-4 ára.
71. Litli bróðir er fæddur í BNA.
72. Systir mín á barn með bandarískum manni.
73. Hann hefur leikið í Thule-auglýsingu OG aukahlutverk í Fálkum.
74. Ef ég eignast e-n tíma stelpu vil ég að hún heiti Eva Sólveig.
75. Evu nafnið kemur frá ömmu minni.
76. Amma mín kann ekki að keyra beinskiptan bíl.
77. Hún hefur tvisvar verið tekin af lögreglunni eftir að hún varð 70 ára.
78. Eitt skiptið virti hún ekki stöðvunarskyldu.
79. Ég man ekki hvað hitt var.
80. Jón bróðir pabba á um 100 geisladiska, flest ef ekki allir alíslenskir.
81. Ég á frænda sem heitir Jonni.
82. Hann er líka í lögfræði.
83. Hann var í Versló.
84. Ég held að hann sé líka aðeins gáfaðri en ég.
85. Ég er með III. stig í söng.
86. Ég elska að dansa.
87. Ég set oft góðan disk í heima í stofu og dansa eins og brjálæðingur.
88. Og syng með líka.
89. Herbergið mitt er alltaf í rúst.
90. Pabbi hatar það.
91. Pabbi hefur stundum tekið til fyrir mig.
92. Bróðir minn á vin sem er sænskur skiptinemi og býr heima hjá Möggu vinkonu.
93. Kærastinn minn á 3 eða 4 leikjatölvur, Ipod, öfluga tölvu, heimabíó og margar DVD myndir.
94. Hann er í japönsku í háskólanum.
95. Það var/er ekki sjónvarp heima hjá mömmu hans.
96. Hann er heldur ekki með sjónvarp í íbúðinni sinni.
97. Mér finnst það kúl.
98. Ég ætti að vera læra núna.
99. Litla frænka mín sem er 18/19 ára er ólétt.
100. Ég var með teina
101. Ég var einu sinni með appelsínugult, ljóst og fjólublátt hár allt í einu.
102. Ég var einu sinni kölluð Frutty.
103. Þá var ég lögð í einelti.
104. Ég forðast ennþá fólkið sem lagði mig í einelti.
105. Ég var líka með rautt stutt hár.
106. Einu sinni held ég, var ég bara ofsalega ljót. hahaahahah
107. Ég slúðra mikið, en veit hvenær ég á að halda kjafti...oftast ;)
108. Sumir segja að ég sé rosalega lík pabba í útliti en sé með svipaðan persónuleika og mamma.
109. Ég á það til að hnerra mjög asnalega.
110. Ég pissa mjög oft.
sunnudagur, febrúar 22, 2004
ég tók víst ekki leigubíl heim heldur kom HARPA systir hans Birkis og ég tróð mér víst með, að sögn Birkis..
Soooorryy.....