*Blesöndin*
*Snillingar vikunnar*
  • Magga, fyrir að eyðileggja sokkabuxurnar á laugardaginn
  • Baldvin, fyrir að vera komin með Hjartslátt
  • *Spjall*
    laugardagur, febrúar 07, 2004

    Sálarstríð

    nenni nenni nenni ekki að læra lalaalalalaa...

    ég á í miklu sálarstríði get ekki ákveðið hvort ég eigi að kaupa mér bjór og kíkja niðri í bæ eða gera það sama og ég gerði í gærkvöldi..... LÁTA MÉR LEIIIIIIÐAST.
    Skjár1 er farinn að sýna kvikmyndir...það vissi ég ekki...fyrren í gær....horfði bæði á the Mask og Interview with a vampire...jejeje

    ...úff ég finn hvernig frunsan er alveg að breiða úr sér ....djöfull...WHY MEEEEEEE??

    *Vigga* skrifaði klukkan: *13:23*


    föstudagur, febrúar 06, 2004

    ekkert merkilegt

    í gær hringdi kona frá Gallup, hún var oooooooooofurhress, alveg með alla hluti á hreinu! Spurði mig allskonar spurninga og var alltaf jafn hress.
    "K:Styðuru ríkisstjórnina?
    V: NEI!
    K: Ertu hlynnt því að Ísland gangi í ESB?
    V: NEI!
    ...o.s.frv."

    Þetta var soldið skemmtileg könnun af því að ólíkt öðrum könnunum um ríkisstjórnina og EES og ESB sem ég hef tekið þátt í þá hafði ég e-a hugmynd um hvað hún var að tala um og hafði myndað mér örlitla skoðun á bæði ríkisstjórninni og allri þessari leiðinlegu ESB umræðu...
    Ekki það að ég ætli e-ð að fara baula niður ríkisstjórnina og tala um hvað það væri ömurlegt ef Ísland gengi í ESB...ég veit ekki nógu mikið til að geta farið að rugla e-ð um það. Held því bara fyrir sjálfa mig.

    Í dag fór ég í Múlakaffi og borðaði þorramat, reyndar ekki allan þennan súra viðbjóð og sviðakjammana, hætti mér ekki strax í það.

    Þegar ég kom á bókhlöðuna fann ég að ég angaði eins og versti hákarl og var að kafna úr lykt af sjálfri mér í nokkra klukkutíma...úffff...verð að fara í bað á eftir og losa mig við þetta!


    FRIENDS byrjar í kvöld
    lalalalalalallalalalalalaaaaaaaaaaaaaaaalalalalalallalalalalaaaaaaaaaaaaala
    lalalaalallaaalaaalalalalalalaalaalalalalaaa
    aaaaaaaaaaaaaaaaaa....þetta var hluti úr "theme laginu" vonandi áttiði ykkur á þessu ...
    lalalalaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaalalalalalalalalaa
    lllllllllaaaaaaaalaaaaaaaaaaaaaaaa....
    lalalalalalalalaaaaaaaallllaaaaaaaaaaaaaaaaa....

    lalllalala...

    lalalaaa...
    la
    lala..
    ok djókið er búið

    *Vigga* skrifaði klukkan: *18:19*


    miðvikudagur, febrúar 04, 2004

    ...langaði bara að deila því með ykkur að ég nenni ekki að vera á þjóbó lengur...
    ...ætla samt að vera til 19.30...veit ekki alveg hvort ég meiki að labba heim vegna vanbúnaðar...
    ...vaknaði í morgun og þá var sól og Vigga litla ákvað að fara í pils...jáááá...
    ...GÓÐA BESTA ÞÚ BÝRÐ Á ÍSLANDI EKKI Á ÍTALÍU...
    ...jesus bobby...
    ...auglýsi hér með eftir sjálfboðaliða til að keyra mig heim...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *18:26*


    ..and that's how the cookie crumbles...

    jahá, ég sé að tilraun mín við að lyfta mínu sóðalega bloggi á hærra plan hefur heppnast með ágætum og er búin að fá 8 comment á síðustu færslu, þvílíkt ríspons! haha..
    Jonni á þau reyndar flest en hann allavega tekur það með stæl, kannski að reyna endurheimta virðinu sína sem el presidente , ég veit það ekki...

    Spurning dagsins: Úr hvaða mynd er fyrirsögn færslunnar minnar?
    Vísbending: Guð og geiflur koma við sögu
    Svar við síðustu spurningu var: Maid in Manhattan, það meistaraverk með hinni glæsilegu leikkonu Jennifer Lopez sem nú síðast lét ljós sitt skína mjög svo skært í myndinni Gigli......



    og ég vona að allir hafi nú gert sér grein fyrir að hér er um kaldhæðni af næstverstu gerð að ræða....

    *Vigga* skrifaði klukkan: *17:42*


    þriðjudagur, febrúar 03, 2004

    Brutu þeir lögin?

    Það er merkilegt þegar upp kemur álitamál á Íslandi hvað öll þjóðin virðist sökkva sér í það. Þannig er því farið um nýjasta deilumál Íslendinga, Ríkisráðsfundinn 1. febrúar 2004 á 100 ára afmælisdegi heimastjórnarinnar. Menn standa ýmist með eða á móti forsetanum og deila hart um það hvort að nú hafi Davíð endanlega slegið lokahnútinn á sinn starfsferil sem forsætisráðherra.
    Það eru nokkrir hlutir sem ég hef velt fyrir mér síðasta sólarhringinn, sem eru samsuðningur frá ýmsum hliðum, pólitískri, lagalegri og tilfinningalegri hlið:
    1. Var rétt af forsetanum að ákveða að fara í skíðaferðalag á merkilegum degi fyrir íslensku þjóðina?
    2. Hefði ekki verið mögulegt að láta hann vita allavega af fundinum? Forsetinn fullyrðir að hann hefði getað lagt af stað á laugardeginum og verið kominn fyrir fundinn á sunnudeginum. Braut ríkisstjórnin stjórnarskránna?

    ..smá pæling sem vert er að velta aðeins fyrir sér...
    ..bara plís, ef þið ætlið að kommenta e-ð, ekki koma með e-rjar árásir á hæstvirtan forseta eða forsætisráðherra, það er ekki málefnaleg umræða...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *22:54*


    nýjir tímar, nýjar áherslur

    ákvað rétt í þessu að hætta vera della og ætla framvegis allavega einu sinni í viku að skrifa e-ð svolítið gáfulegt.
    með þessu er ég ekki að segja að ég ætli að hefja e-a yfirborðskennda menningarlega umræðu eins og sum blogg virðast einkennast af. ég ætla heldur ekki að þykjast vita e-ð um e-ð sem ég veit ekkert um eins og bækur, kvikmyndir, leikrit eða e-ð þvíumlíkt og hefja þannig þessa yfirborðskenndu umræðu heldur bara beint frá hjartanu um það sem ég rekst á ...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *15:23*


    2 down 3 to go

    Jæja, nú er Hildur líka farin. Hún er farin til Spánar í 5 mánuði og ég sakna hennar strax(hún fór í morgun). Hildur mín, ef þú kemst í tölvu og getur lesið þetta, þá segi ég bara frá okkur öllum SAKNA ÞÍN ÝKT MIKIÐ OG SKEMMTU ÞÉR ÝKT VEL.
    Við fórum að kveðja hana í gær, eftirlifandi Íslandsdellur, og fengum að skoða gamlar myndir af okkur, mismunandi myndarlegar...ég held þó að Manson tímabilið mitt og "Hildur risi" hafi slegið allt út... hahaha

    jamm og jæja, ætla að fara læra...

    þetta rímaði held ég bara..

    *Vigga* skrifaði klukkan: *10:53*


    Framhald III
    ...jæja... Allavega vaknaði ég daginn eftir, furðulega hress og horfði á alla Back to the Future triology-una meðan Gummi var á GameCube móti í Bræðrunum Ormsson. (já, ef e-r er að velta því fyrir sér, við erum nördaparið stundum) og svo lærði ég líka smá, jej...
    Um kvöldið fór ég til Möggu þar sem við hittumst nokkrar í eldhúsinu hjá henni og fengum okkur bjór(freyðivín) og fórum svo á Hverfisbarinn...hljómar kunnulega???

    Ég og Arney komumst að þeirri niðurstöðu, þar sem við vinkonurnar virtumst vera í smá "diss-skapi" þetta kvöld, að ef við færum líka næstu helgi út að tjútta þá yrðum við lamdar svo við ætlum að taka hlé núna.

    bleh...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *10:48*


    mánudagur, febrúar 02, 2004

    Framhald II

    Mjög stutt, en eftir smá upprifjun í skólanum þá mundi ég það að Jonni var eitthvað valtur þetta kvöld af því að aumingja drengurinn valt líka út um glugga á Pravda út á Austurstrætið, það var alveg yndislega "ójonnalegt" og gleymist seint...hahahahah

    *Vigga* skrifaði klukkan: *15:54*


    Aldrei aftur

    nei, núna er dæmið búið. Þetta er orðið fáránlegt og ég er hætt. Helgin fór í tómt sull og svall og ég vil ekki endurtaka svona viðbjóð aftur í langan tíma(allavega næstu tvær helgar).
    Það versta sem ég veit er þegar maður fer út á lífið báða dagana því á sunnudeginum ertu komin með svo mikið nóg af sjálfum þér að þér býður við því að þurfa að líta í spegil.
    ok, á föstudaginn fór í ég kokteilinn hjá Esso sem var mikið fjör(fyrir kannski utan klst. langan fyrirlestur um bensín og neytendavörur). Þegar klukkan var e-ð um sjö komu rútur sem fluttu liðið á Felix og gekk mikið á í þeirri rútu,aðallega v. þess að fólk lagði sig mikið fram við að syngja úr sér lungun. Á Felix var síðan haldið áfram að "djamma og djúsa" þótt að laganemar hefðu verið reknir út á dansgólf þar sem nemendur Tækniháskólans áttu sófana(?). Þegar klukkan var um 8 og allir orðnir mjög hressir ákvað Alma Tryggvadóttir að stinga af með Jóa "vini" sínum og fleirum í partý, ég var ekkert alltof hress með það en ákvað bara líma mig við Jonna frænda og co. í staðinn. Óheppilegt að ég skyldi óvart ruglast á símum við Ölmu(NB. slökkt á þeim báðum). Allavegana, fórum síðan á Pravda í leit að fríum bjór og fundum. Ég týndi líka veskinu mínu þar en var ekkert að hafa miklar áhyggjur af því þótt ég væri peningalaus, símalaus og allslaus... Eftir að hafa náð sambandi við Arney ákvað ég að fara til Guðnýjar í stelpupartý, en það var einn hængur á...ég hafði engan pening til að komast þangað...svo auðvitað bauð ég bara Jonna og fleirum með mér og lét þá borga bílinn (..sniðug, þótt að ég hafi kjaftað því að ég ætti 500 kr...djöfull!). Við lékum á alls oddi heima hjá Guðnýju, hvort sem það var að el presidente væri að detta af stólum eða Alli að panta bíl fyrir The president of the United States. Í minningunni(sem gæti verið soldið óljós) var mjög fyndið þegar bíllinn fyrir presidentinn kom og einhverjir ákveðnir aðilar reyndu að setjast inn í bílinn aftast án þess að toga sætið fram...þetta minnti pínulítið á atriðið í Love Actually með kolkrabbanum..hahah....
    Allavega, fórum á Hverfis eftir að hafa beðið í röð endalaust og það var ágætt..Hitti líka vinkonurnar þarna og fór að róast niður eftir það og Arney lét mig loka VISA kortinu mínu(hún samt gerði það fyrir mig,takk Arney mín), thank god. Um fjögurleytið var ég búin á því enda búin að vera í fjörinu síðan kl. 5 og hringdi í Gumma og lét hann taka með mér leigubíl heim til hans.
    ....Guð verð að drífa mig í tíma..framhald seinna...

    *Vigga* skrifaði klukkan: *11:39*